Fjórtán ábendingar um minka hafa borist til aðgerðastjórnar Mosfellsbæjar frá því á hádegi í gær. Þar af eru þrír sem gætu verið úr Dalsbúi, í Mosfellsdal, þaðan sem þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum í vikunni. Flestir minkarnir voru fangaðir innan öryggisgirðingar búsins en ekki er vitað hvað margir ganga lausir.Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Tilkynnt um 14 minka síðan í gær