Greint er frá þessu í erlendum miðlum á borð við Reuters og breska ríkisútvarpið. Í umfjöllun Reuters um málið segir að skrefið sé þáttur í herferð ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta gegn dómstólnum.
Útiloki þau frá bandaríska fjármálakerfinu
Rubio hafi sagt í yfirlýsingu sinni vegna aðgerðanna að þær beindust að Tomoko Akane, japönskum dómara sem er forseti Alþjóðaglæpadómstólsins, og Abdoulaye Seye, yfirlögfræðingi og senegölskum ríkisborgara. Þær væru að tilskipun Trumps frá því í fyrra sem heimili refsiaðgerðir gegn dómstólnum.
„Þessir einstaklingar hafa tekið beinan þátt í tilraunum Alþjóðaglæpadómstólsins til að rannsaka, handtaka, halda eða sækja til saka embættismenn ríkisstjórnar sem hefur ekki samþykkt lögsögu dómstólsins,“ er haft eftir Rubio.
Í fyrra hafi bandarísk yfirvöld beitt aðra háttsetta innan dómstólsins refsiaðgerðum og þá vísað til handtökuskipana dómstólsins á hendur Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels, auk fyrri rannsóknar á bandarískum hermönnum í Afganistan.
Sé að verja aðra frekar en sjálfan sig
Refsiaðgerðirnar felast í því að frysta allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum og útiloka þá í raun frá bandaríska fjármálakerfinu, sem nánast allir alþjóðlegir bankar hafa náin tengsl við, er fram kemur í umfjöllun Reuters.
Þrír dómarar við Alþjóðaglæpadómstólinn hafi stefnt Trump og ríkisstjórn hans í júní vegna refsiaðgerðanna og haldið því fram að aðgerðirnar væru ólöglegar. Trump hafi sjálfur sagt að herferðin hafi miðað að því að verja Netanyahu og aðra, frekar en sjálfan sig.