„Við eigum allt okkar bændum að þakka og dýraeigendum. Við munum þjónusta þá áfram í algjörlega óbreyttu formi nema bara af meiri krafti og meiri þjónustu,“ segir Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og einn af fyrri eigendum Dýraspítalans Lögmannshlíðar á Akureyri. Hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt eignarhlut sinn í spítalanum til þýska stórfyrirtækisins Altano en heldur sjálfur áfram að vinna þar. Gestur segir að starfsemi Lögmannshlíðar verði með óbreyttu sniði þrátt fyrir söluna til Altano.
Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi. Altano sérhæfir sig í dýraspítölum fyrir hesta.
Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Meðal annars ellefu í Danmörku og tvo dýraspítala sem sérhæfa sig alfarið í hestum í Svíþjóð samkvæmt þarlendum ársreikningum þessara félaga. Altano á nú meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn.
Þetta helst sendi spurningar til Altano um þessi viðskipti fyrirtækisins á Íslandi. Fyrirtækið hafði ekki svarað spurningunum þegar þátturinn fór í loftið.
Einhverjir íslenskir bændur á starfssvæðum dýraspítalanna á Norðurlandi hafa spurt sig spurninga um fyrirtætlanir þýska fyrirtækisins og hvað það ætlist fyrir með þessum kaupum. Þannig heyrði Þetta helst fyrst af þessum viðskiptum með dýraspítalana.
Fjallað er um kaup Altano á dýraspítölunum í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Kaupverðið rúmlega 600 milljónir
Altano er í eigu fjárfestingarsjóðs í Sviss sem heitir Ufenau Capital Partners sem keypti ráðandi hlut í fyrirtækinu árið 2017. Á heimasíðu svissneska fjárfestingarsjóðsins kemur fram að hann eigi tæplega 30 fyrirtæki víðs vegar um heiminn, aðallega í Evrópu.
Í ársreikningi íslensks dótturfélags Altano Group kemur fram að kaupverð dýrapítalana þriggja hafi samtals verið 625 milljónir króna. Lögmannshlið var keyptur á 285 milljónir króna, spítalinn í Glæsibæ á tæpar 223 milljónir og Drösull á tæplega 147 milljónir.
Gestur segir að þessi viðskipti séu ekki stór fyrir Altano og að um sé að ræða gæluverkefni fyrir fyrirtækið sem byggi fyrst og fremst á áhuga þýska fyrirtækisins á íslenska hestinum. „Ég held að það sé fyrst og fremst þessi almenni áhugi á hestum. Svo náttúrlega er Ísland perla fyrir hesta. Við erum náttúrlega með kringum 60 til 70 þúsund íslenska hesta á Íslandi. Í heiminum eru þeir cirka 300 þúsund þannig að það er orðið alþjóðasamfélag líka, íslenski hesturinn og allt í kringum hann“ segir Gestur.