Tilkynning um slysið barst um klukkan eitt, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúar Landsbjargar. Hann hafði ekki frekari upplýsingar um þann sem féll í ána aðrar en að hann væri fullorðinn einstaklingur.
Fyrstu björgunarsveitarmennirnir eru mættir á staðinn en fleiri eru á leiðinni af Austurlandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað með straumvatnsbjörgunarmenn frá sveitum á höfuðborgarsvæðinu nú eftir klukkan tvö.
Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður tókst nærstöddum að komu konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.