Flautað var til leiks í fertugasta sinn á N1-móti drengja í knattspyrnu á Akureyri á miðvikudaginn. Ríflega 1600 keppendur spila fótbolta frá morgni til kvölds en þeim fylgja einnig töluverður fjöldi aðstandenda og Akureyrarbær iðar af lífi. Þó að fótboltinn sé í forgangi hjá flestum er margt annað sem fylgir.
Fyrir utan stórtónleika, bíó- og sundferðir þá breytist íþróttahús KA í stórt mötuneyti þar sem keppendur borða morgun-, hádegis- og kvöldverð alla keppnisdagana. Það eru alls um 18.000 matarskammtar.
Norðanmegin við Glerá fer fram Pollamót fyrir fullorðna í dag og á morgun. Þar er gleðin við völd og gamalkunnir taktar sjást víða, þó svo að sumir séu komnir af léttasta skeiði. Keppt er í bæði karla og kvennaflokki á Pollamótinu þar sem yngstu keppendurnir eru 20 ára en þeir elstu töluvert eldri.