Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út rétt fyrir klukkan þrjú í nótt eftir að tilkynnt var um slagsmál utandyra við Valhallarbraut í Reykjanesbæ.
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að þegar lögregla kom á vettvang hafi fjöldi manns verið samankomin utandyra og var fljótlega óskað eftir frekari aðstoð viðbragðsaðila þar sem tilkynnt var um hnífaburð.
Þá kom í ljós að einn var með stungusár og annar til var með sár á hendi. Sérsveit ríkislögreglustjóra kom til aðstoðar á vettvang við leit af gerendum.
Að sögn lögreglu voru þrír handteknir á vettvangi og bíða þeir yfirheyrslu. Sá sem var stunginn er á spítala og er ekki í lífshættu. Lögreglan á Suðurnesjum mun fara fram á gæsluvarðhald í dag í þágu rannsóknar málsins sem er á frumstigi.