Hafrannsóknastofnun leggur til, í veiðiráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár sem kynnt var í dag, að veiðiheimildir á ýsu, ufsa og síld verði minnkaðar á næsta ári.
Heimildir á ýsu dragist saman um 20%, ufsi um 16% og síldveiðiheimildir um 22%.
Þorskur hefur ekki stækkað sem skyldi síðustu ár og því er lagt til að veitt verði svipað magn úr stofninum og á yfirstandandi vertíð. Það horfir þó til bóta, þar sem búist er við góðri loðnugengd næsta haust sem er mikilvægt æti fyrir þorskinn.
„Þorskurinn lítur ágætlega út. Við búumst við því að hann verði á svipuðu róli á næsta ári. Ýsan, þar erum við að sjá góða nýliðun árið 2025 þannig að við búumst við því að stofnstærðin fari vaxandi. Við búumst ekki við neinum breytingum í ufsanum,“ segir Bjarki Þór Elvarsson, fagstjóri ráðgjafar hjá Hafrannsóknastofnun.
„Í öðrum tegundum erum við að sjá líka góða nýliðun að detta inn, sérstaklega í gullkarfastofninum þar sem við búumst við því að á næstu árum verði aukning í nýliðun.“
Horfa til betri vegar næsta haust
Bjarki segir þorskstofninn í góðu jafnvægi þrátt fyrir að hann flökti í kringum meðaltal milli ára. Hann hafi farið minnkandi á undanförnum árum skýrist í ljósi lélegrar loðnugegndar.
„En við búumst við því að það verði góð loðnugegnd næsta haust þannig að við horfum til betri vegar þar.“
Í seinni tíð hefur verið lítið um umfangsmiklar breytingar á hafsvæðinu kringum Ísland, segir Bjarki.
„Við höfum verið að sjá frekar lélega nýliðun í sumum tegundum sem er kannski hluti af eðlilegum takti lífsins. Stærstu breytingarnar áttu sér stað í kringum 2003 þegar loðnustofninn færði sig til meira til austurhluta Grænlands og við sjáum hann núna bara sem vetrargöngu.“