Þorgerður Katrín tekur sér boðvald yfir Hildi

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Kosninganóttina klukka þrjú gaf Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar það út að flokkurinn færi ekki í meirihlutasamstarf með Miðflokknum. Rökin eru hrein og klár valdapólitík. Það hentar ekki pólitískum hagsmunum Viðreisnar að Miðflokkurinn fái aðild að meirihlutasamstarfi. Þorgerður Katrín tók flokkshagsmuni ofar almannahagsmunum með þessum orðum:
Það er alveg skýrt að Viðreisn er ekki að mynda meirihluta með Miðflokknum af því að það er einfaldlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að það myndist hér sterk, öflug, frjálslynd miðja sem einmitt dregur úr öfgunum í íslensku samfélagi og þar er Viðreisn.
Þorgerður Katrín má hafa þá skoðun að Miðflokkurinn ógni flokkshagsmunum Viðreisnar. En skörin færist upp í bekkinn þegar formaður Viðreisnar tekur sér boðvald yfir oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hildi Björnsdóttur.
Miðflokkurinn hlaut góða kosningu vítt og breitt um landið. Flokkurinn er víða með um og yfir tíu prósent fylgi, jafnvel hressilega yfir. Flokkurinn bauð fram í 19 sveitarfélögum og fékk 23 fulltrúa kjörna. Miðflokkur og Vinstri grænir eru sagðir hvor á sínum væng stjórnmálanna. Miðflokkurinn til hægri við Sjálfstæðisflokkinn en Vinstri grænir til vinstri við Samfylkinguna/Viðreisn. Aðeins í einu sveitarfélagi, Akureyri, buðu Vinstri grænir fram undir eigin merkjum. Vinstri grænir eru að hverfa, heita Vinstrið í Reykjavík og Hafnarfirði. Menningarpólitísk stefnumál Vinstri grænna, samheitið er vók, eiga nú lögheimili hjá Viðreisn.
Byggðakosningarnar sýndu að kjósendur halla sér til hægri. Viðreisn sækist eftir fyrri stöðu Vinstri grænna sem ólu á skautun í samfélaginu. En kjósendur höfnuðu öfgum. Til marks um það er heimabær tilfallandi, Seltjarnarnes. Viðreisn bauð fram með Samfylkingu og tapaði fylgi, missti mann í bæjarstjórn. Miðflokkurinn bauð fram á Nesinu og fékk myndarleg 14,5 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. Sjálfstæðisflokkurinn hélt meirihluta sínum, líkt og hann hefur gert frá skömmu eftir lýðveldisstofnun.
Viðreisn er nú um stundir helsti öfgaflokkurinn á landsvísu. Einn stjórnmálaflokka krefst Viðreisn aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Enginn annar stjórnmálaflokkur er með slíka umpólun á íslensku samfélagi á dagskrá.
Viðreisn státar líka af mesta frekjuhundi íslenskra stjórnmála, sem er sjálfur utanríkisráðherra. Láti Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, formann Viðreisnar kúga sig til hlýðni, og hafni samstarfi við Miðflokkinn, getur Hildur kvatt frekari stjórnmálaframa. Oddviti sjálfstæðismanna í húsmennsku hjá formanni Viðreisnar er engu sjálfstæði, að ekki sé sagt fullveldi, til framdráttar.
Standi flokksforysta Sjálfstæðisflokksins með Hildi, í uppgjöfinni gagnvart utanríkisráðherra, er næsta skref að senda fyrirspurn til Þorgerðar Katrínar um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn fái leyfi til að verða flokksdeild Viðreisnar. Náðarsamlegast.