Þetta umhverfis- og loftlagsrugl á sér engin takmörk

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Meirihlutinn í Kaupamannahöfn samþykkti 60 blaðsíðna martarmarkmið, sem skrifað í smáatriðum, um hvernig eldra fólk í sveitarfélaginu á að borða á umhverfisvænan hátt.
Samkvæmt skjalinu eiga íbúar hjúkrunarheimila að fá aðeins eina sneið af kjötáleggi á rúgbrauðið í hádegismat. Ef kjötáleggið er nautakjöt á að bera það fram á 14 daga fresti.
Í dag geta samtökin Skattgreiðendur upplýst að stjórnmálamenn fara ekki eftir þessari ströngu matarstefnu sjálfir. Í mötuneyti ráðhússins, fyrir stjórnmála- og embættismenn, er nautakjöt borið fram daglega og í því mæli að það myndi duga hjúkrunarheimili í 1-2 mánuði fyrir íbúa þess. Myndir frá mötuneytinu sýna veislumat, rúgbrauð með 2-3 sneiðum af roastbeef á hverri brauðsneið. Þar við bætist medesterpylsa, fiskur og purusteik.
Þannig að, eldra fólkið í Kaupmannahöfn á að borða samkvæmt umhverfisvænu markmið og plani Kaupmannahafnar, en í ráðhúsinu á ekki að skera við nögl.
Það er bara eitt orð yfir þetta: tvöfeldni.
Að meðaltali borgar hver Dani í kringum 16 milljónir danskra króna í skatt yfir ævina. Hluti af peningunum fara í hjúkrunarheimilin, þar sem elsta kynslóðin á að lifa áhyggjulaus ævikvöld síðustu árin.
Af þeim sökum á eldra fólkið að fá þann mat sem því líkar og langar til að borða.
Öldungarnir eiga ekki að borða í nafni loftslagsins. Og alls ekki þegar stjórnmálamenn hafa ekki sjálfir orku eða vilja til að fara eftir þeim reglum sem þeir setja um aðra.
Heimild: Skattgreiðendur í DK Facebook