„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur, svo héldum við karlakórstónleika og þegar við fórum að sofa var eiginlega komið slagveður og norðvestan rok.“
Þetta segir Magni Ásgeirsson, einn stofnenda og skipuleggjenda Bræðslunnar sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina. Hann segir að þrátt fyrir mikinn viðsnúning í veðri í gærkvöld og nótt hafi ekkert alvarlegt komið upp á.
Magni segir að nóttin hafi þó farið í það að koma tjöldum fyrir og passa að allt væri bundið niður. „Við fórum ekkert að sofa,“ segir hann.
Hlynur Sveinsson, sem er gestkomandi á Borgarfirði eystra, segir að hann hafi farið í björgunaraðgerðir í morgun þar sem fella þurfti tjöld og hjálpa fólki í vandræðum. „Vindurinn fór alveg upp í 20 metra,“ segir hann.
Margmenni er í bænum þessa stundina. Magni segir tjaldsvæðið vel nýtt og í tjaldað í görðum við hvert hús. „Eins og vanalega þessa vikuna og þetta er búið að vera ótrúlega mikið þennan mánuðinn,“ segir hann.
Hann telur að stemningin hafi verið nokkuð góð í gær og í nótt.
„Nema hjá kannski yngsta hópnum sem er með minnstu tjöldin og ætlaði að koma og fara í útilegu með vinum sínum. Þeir fengu kannski fullharkalega inngöngu inn í útileguna.“
Magni segir þó hlæjandi að Íslendingar séu duglegir að taka með sér stór tjöld og hjólhýsi sem hafi aðstoðað í vindinum.
„Mér sýnist meirihlutinn af tjaldsvæðinu vera stærri hýsi en fyrsta íbúðin okkar var þannig að þetta hefur sennilega ruggað þeim fallega í svefn.“
Í dag hefur stytt upp þótt það sé nokkuð rok á Borgarfirði. Það ætti þó ekki að hafa áhrif á Bræðslutónleikana í kvöld sem eru haldnir innandyra.