Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ gengu hratt og örugglega fyrir sig segir Vilhjálmur Árnason oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Flokkarnir hafa báðir talað fyrir átaki í móttöku hælisleitenda í Reykjanesbæ. Guðlaugur Kárason segir ljóst að Reykjanesbær hafi ekki tök á því að taka á móti fleiri hælisleitendum; innviðir sveitarfélagsins séu sprungnir.
„Okkar hlutverki er lokið þar sem við tökum á móti nýjum hælisleitendum, þannig að það er bara sú vinna sem við förum í og fólk mun sjá það og ég held að fólk hafi nú alveg séð að málefnaskrárnar okkar fjölluðu báðar um það svo þetta ætti ekki að koma neinum á óvart.“
Meirihlutinn ætli að setja skýr mörk í málaflokknum
Vilhjálmur segir að meirihlutinn ætli að setja skýr mörk í málaflokknum. Þá verði lögð áhersla á að ekki verði fleiri úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
„Þeir sem eru hér enn þurfa að fara eftir okkar leikreglum og hafa það allt saman skýrt þannig að við erum sammála um það og vorum það alla kosningabaráttuna þannig að þetta var ekki erfitt mál í okkar samningsviðræðum.“
Vilhjálmur segir að bæjarstjórn Reykjanesbæjar muni gera ríkinu ljóst að úrræði, þ. á m. búsetuúrræði fyrir hælisleitendur, standi ekki til boða í sveitarfélaginu. Ákveði ríkið að opna brottfararstöð í sveitarfélaginu segir Vilhjálmur að þeim verði sett þau mörk að brottfararúrræðið yrði að vera lokað, afgirt og ekki inni í íbúabyggð.
Víkur frá þingstörfum eftir þrettán ára starf
Vilhjálmur hefur verið á þingi í um þrettán ár. Hann segir tilfinninguna að kveðja þingið skrítna en að hann kvíði henni þó ekki.
Á næstu vikum kemur í ljós hvenær Vilhjálmur tekur formlega við bæjarstjórastólnum.