Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu - DV

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu - DV

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu - DV

Karlmanni hefur verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 26. maí vegna samfelldrar brotastarfsemi um tveggja ára skeið. Af úrskurðinum má ráða að maðurinn glími við alvarlegan áfengis- og fíknivanda, en brotin sem hann er grunaður um eru fjölmörg.

Elsta brotið sem er tilgreint í úrskurðinum átti sér stað í október árið 2022 en því er lýst með eftirfarandi hætti:

„Varnaraðili ákærður fyrir rán og nytjastuld, með því að hafa fimmtudaginn 20. október 2022, í félagi við einn þekktan aðila og einn óþekktan, brotist inn á heimili brotaþola, að […] í Reykjavík með því að sparka upp hurð að íbúðinni, beitt hann ofbeldi og hótunum, en varnaraðili lamdi brotaþola allt að fimm sinnum í andlitið með krepptum hnefa með þeim afleiðingum að hann hlaut sár á hægri kinn, sprungu í vör, heilahristing og flísaðist úr tönn, hótaði honum og fjölskyldu hans lífláti og að kveikja í hundi hans, þá henti varnaraðili síma brotaþola, Iphone 14 Pro Max, í gólfið með þeim afleiðingum að hann brotnaði, og í félagi tóku þeir Macbook Pro 16“ M1 Pro tölvu, kveikjuláslykla af bifreið brotaþola með skráningarnúmerið […], 66° Norður úlpu, 14 karata gullhálsmen, 450-750 gr. gullkeðju, 75 gr. gullarmband, tvö pör af eyrnalokkum með hálfs karats demöntun, 550 gr. stálkeðju, Hermés belti, Apple Watch Ultra Trail Loop, sólgleraugu, þrjú Airpods Pro, Hilti skrúfubox, borbitabox, Hilti verkfærabox með borvél, reiðufé, Tag Heuer Aquaracer úr, Dolce Gabbana rakspíra, One Million rakspíra, Versace rakspíra og tvo Hugo Boss rakspíra, skemmdu úti- og innihurð, en verðmæti framangreindra muna er allt að kr. 5.480.655, og báru þeir þýfið út og inn í bifreið brotaþola og óku á brott.“

Síðan er maðurinn sakaður um fjölmörg brot, þá einkum búðarhnupl, sviptingarakstur og fíkniefnaakstur. Eins er hann þó sakaður um brot gegn valdstjórninni, brot gegn lögreglulögum, eignaspjöll og ítrekaðar líkamsárásir.

Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald með vísan til þess að maðurinn hefði verið nær óslitið í afbrotum frá 29. janúar 2025 til 30. mars 2026. Miðað við brotaferilinn var það mat lögreglu að yfirgnæfandi líkur væru á því að maðurinn myndi halda áfram að brjóta af sér ef hann væri frjáls ferða sinna. Auk þess var maðurinn á skilorði.

Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst á það með lögreglu að ætla megi að maðurinn haldi áfram að brjóta af sér og að yfirgnæfandi líkur séu á því að hann hafi brotið gegn skilorði sínu. Þar með væru forsendur til staðar fyrir gæsluvarðhaldi. Var manninum gert að sæta gæsluvarðhaldi fram til 26. maí og Landsréttur hefur nú staðfest úrskurðinn..

Ævintýralegur fjöldi brota á tveggja ára tímabili

Brotin sem talin eru upp í úrskurði héraðsdóms eru eftirfarandi en af þeim má sjá ákveðna stigmögnun og líklega einbeittan brotavilja, en stundum hnuplaði hann úr sömu versluninni oft á dag:

  • 3. júlí 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
  • 31. júlí 2024: ók bifreið sviptur ökurétti
  • 1. ágúst 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna
  • 13. október 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og sinnti ekki merkjagjöf lögreglu
  • 16. október 2024: steig á vélarhlíf bifreiðar á bifreiðarstæði í Kópavogi með þeim afleiðingum að dældir komu í hana.
  • 16. nóvember 2024: braut rúðu í íbúð í Kópavogi með því að slá í hana með barefli.
  • 29. janúar 2025: braut gegn lögreglulögum með því að reyna að flýja handtöku. Lögreglumenn þurftu að beita úða- og rafvopni til að yfirbuga manninn.
  • 29. janúar 2025: brot gegn valdstjórninni er hann lokaði útidyrahurð á fót lögreglumanns við skyldustörf.
  • 3. febrúar 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 2.439 kr.
  • 15. mars 2025: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
  • 14. apríl 2025: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
  • 22. apríl 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 2.479 kr.
  • 5. maí 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.616 kr.
  • 14. maí 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.014 kr.
  • 26. maí 2025: stal 5 Viking Lite bjórdósum úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmætið nam 2.295 kr.
  • 21. júní 2025: braut gegn lögreglusamþykkt með óspektum á almannafæri fyrir utan skemmtistað í Reykjavík þar sem hann hellti bjór yfir lögreglubifreið.
  • 6. júlí 2025: tók leigubíl frá Akranesi til Kópavogs og borgaði ekki. Ökugjaldið nam 33.500 kr.
  • 24. ágúst 2025: gerði tilraun til þjófnaðar með því að reyna að brjótast inn í bifreiðar í bifreiðageymslu í Kópavogi. Var staðinn að verki af lögreglu.
  • 30. ágúst 2025: olli skemmdum á bifreið við bifreiðastæði í Kópavogi með því að sparka í hurðir bifreiðarinnar svo að dældir og rispur komu í hana.
  • 15. september 2025: tók leigubíl frá Engihjalla en borgaði ekki ökugjald að fjárhæð 3.000 kr.
  • 18. september 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.297 kr.
  • 16. september 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 799 kr.
  • 18. september 2025:  stal parmaskinku úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
  • 30. september 2025: gripinn með 1,68 grömm af kókaíni í Garðabæ
  • 30. september 2025: stal 5 Viking Lite bjórdósum úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmætið nam 2.295 kr.
  • 6. október 2025: stal bjórdós af gerðinni Viking Lite úr vínbúð ÁTVR í Kringlunni að verðmæti 459 kr.
  • 16. október 2025: stal áfengisflösku að verðmæti 3.498 kr. úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
  • 16. október 2025: stal áfengisflösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
  • 16. október 2025: stal áfengisflösku að verðmæti 2.148 kr. úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
  • 19. október 2025: stal að verðmæti 955 kr úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
  • 24. október 2025: stal tveimur áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 25. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 29. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr, úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 29. október 2025: stal áfengisflösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 29. október 2025: tilraun til þjófnaðar með því að stinga flösku inn á sig í vínbúð ÁTVR á Dalvegi en framvísaði flöskunni eftir að öryggisvörður hafði afskipti af honum.
  • 29. október 2025: braut póstkassa á heimili fyrrum sambýliskonu sinnar.
  • 30. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR í Skeifunni.
  • 31. október 2025: stal matvöru að verðmæti 1.467 kr. úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
  • 31. október 2025: stal matvöru að verðmæti 1.467 kr. úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
  • 1. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 11.684  kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 1. nóvember 2025: stal 2 áfengisflöskum, Opal mix pela og Koskenkova pela, úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmæti 5.488 kr.
  • 1. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi. Verðmæti 4.586 kr.
  • 1. nóvember 2025: brot gegn lögreglulögum með því að hafa fyrir utan ÁTVR að Dalvegi ekki sinnt fyrirmælum lögreglu en maðurinn hafði verið að reyna að komast inn í bifreiðar á stæðinu. Reif maðurinn sig í framhaldinu lausan við handtökuna og reyndi að hlaupa í burtu í átt að Smáratorgi en þá togaði lögreglumaður í hönd ákærða til að stöðva för hans og við það féllu bæði ákærði og lögreglumaðurinn niður bratta á bifreiðastæði og lenti lögreglumaðurinn á bifreið sem varð fyrir tjóni.
  • 3. nóvember 2025: stal pela af gerðinni Koskenkorva vodka úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi. Verðmæti 2.149 kr.
  • 5. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 4.586 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 5. nóvember 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 4.698 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 5. nóvember 2025: stal vodka og bjórdós að verðmæti 2.518 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 6. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 6. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 7. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 3.317 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 8. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 10. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 4.067 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 10. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 4.586 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 11. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 4.067 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 10. nóvember 2025: stal pela af vodka af gerðinni Koskenkorva að verðmæti 2.668 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
  • 14. febrúar 2026: grunaður um húsbrot og hótanir með því að hafa brotist inn á heimili móður sinnar í Garðabæ og hótað henni lífláti.
  • Ótilgreind dagsetning: Við flutning á lögreglustöð hótaði maðurinn lögreglumanni ítrekað lífláti og sagðist ætla að nauðga barni lögreglumannsins. Maðurinn sagðist líka hafa óþarflega mikla löngun til að sparka í andlit lögreglumannsins.
  • 19. febrúar 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 3.307 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 21. febrúar 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 2.538 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • Ótilgreind dagsetning: maðurinn er grunaður um að hafa veist að einstaklingi með ofbeldi og mögulega brotið á hendi brotaþola.
  • 11. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 2.538 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 14. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 4.596 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 19. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 5.136 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 19. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 20. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 23. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
  • 30. mars: grunaður um sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að konu, kastað henni til og tekið hana hálstaki.

 

 

 

 

#gruns #gæsluvarðhaldi #sæta #vegna #þarf


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/4/tharf-ad-saeta-gaesluvardhaldi-vegna-gruns-um-aevintyralegan-fjolda-brota-eftir-tvo-ar-af-naer-oslitinni-brotahrinu/

📰 Aðrar fréttir

Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fjöldi sjálfs­víga svipaður og fyrri ár - Vísir
Af þeim voru 28 karlmenn og fimmtán konur. Einn var á barnsaldri, undir 18 ára, en flestir, 21 þeirra, á aldrinum 45 til 59 ára. 22 bjuggu á höfuðborg...
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðjan færist til föstudags vegna veðurs – Páll Óskar leiðir Söng sem sameinar með fjórum kórum
Mannúðarkeðjunni, sem átti að fara fram á Austurvelli í dag, fimmtudaginn 24. september, hefur verið frestað um einn dag vegna veðurs. Samstöðuaðgerði...
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
📅 24.09.2026 👁️ 0
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að manni sem var á reynslulausn verði gert að fara aftur í fangelsi til að sitja af sér e...
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Björn Leví segir Guðmund Inga beittan ofbeldi: „Þeim sem finnst hótanir ekki vera ofbeldi verða bara að rífast við orðabókina um það“
Björn Levi Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, segir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra Flokks fólksins, hafi verið beittur ofbeldi ...
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum
Tvær skriður féllu í Landmannalaugum eftir hádegi. Litlu munaði að önnur skriðan hafnaði á rútu. Hún hefði líklega endað ofan í á segir yfirlandvörður...
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Guðrún krefur Ingu um svör við „blekkingarleik“
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óund...
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Björn Leví telur ein­sýnt að Guð­mundur Ingi hafi verið beittur of­beldi - Vísir
Guðbjörg var á þeim tíma aðstoðarkona Guðmundar Inga sem telur einsýnt að hann hafi verið stunginn í bakið.  Það rímar hins vegar ekki við upplifun In...
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Til­kynningar um heimilis­of­beldi milli for­eldra og barna tvö­faldast - Vísir
Alls bárust lögreglunni um land allt 1.188 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining á milli skyldra eða tengdra einstaklinga á tímabilinu janúar t...
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
📅 24.09.2026 👁️ 0
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum
Aðalmeðferð í skaðabótamáli Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þorsteinn höfðaði má...
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
📅 24.09.2026 👁️ 1
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér
Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ek...
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
📅 24.09.2026 👁️ 1
Hin íslenska Marketa greinir frá síðasta verkefninu með Glen Hansard áður en hann lést sviplega
Tékknesk-íslenska tónlistarkonan Marketa Irglová greinir frá síðasta tónlistarverkefninu sem hún og hinn írski Glen Hansard unnu að áður en hann lést ...
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
Útköll sérsveitar ríkislögreglustjóra hafa sjöfaldast frá 2014 en sveitin er ekki fullmönnuð. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu ...
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
350 milljóna tekjur Þing­valla í húfi vegna náttúrupassa - Vísir
„Þarna er verið að fjalla um tæplega 60% af okkar rekstrarfjármagni og það náttúrulega segir sig sjálft að þar svona staldra ég við,“ segir hann í sam...
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti - Vísir
Í stuttu máli varðar dómur Hæstaréttar að kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 hafi fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorl...
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
📅 24.09.2026 👁️ 1
Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þett...
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi
Björgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.Skemman er við bóndabæ austan við ...
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
📅 24.09.2026 👁️ 1
Andy Carroll: Former England striker reveals he was sexually assaulted in 2021
Former England striker Andy Carroll reveals he was sexually assaulted in 2021, by a man who has subsequently been jailed for three years.
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna Fréttin24. september 2026Aðsend grein, Innlent, RÚV, TransmálLeave a Comment Samsett mynd: Fh. Ragnar Bjarnason, Eldur ...
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
📅 24.09.2026 👁️ 1
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá L...
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hef...
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
📅 24.09.2026 👁️ 1
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
Barnastjarnan Julianna Rose Mauriello, sem í mörg ár fór með hlutverk Sollu Stirðu í barnaþáttunum um Latabæ, hefur gerbreytt um stefnu í lífinu. Maur...
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálará...
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
„Þetta er að koma fram núna út af því sem hefur gengið á undanfarið, bæði vegna yfirlýsinga Ingu en líka yfirlýsinga frá Ragnari Þór þar sem hann svar...
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
Cardiff's Principality Stadium will host Anthony Joshua and Tyson Fury's all-British heavyweight fight on 11 December.
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
📅 24.09.2026 👁️ 1
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfames...
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
📅 24.09.2026 👁️ 0
Most cross-Channel migrant small boat arrivals in single day of 2026
A total of 781 migrants arrive on Wednesday, but the yearly total is below the same point in 2025.
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð Að­stoð­ar­kona Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar, fyrr­ver­andi barna- og men...
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
Fyrsta alvöru haustlægðin gengur nú yfir landið og hafa fleiri viðvaranir bæst við þær sem gefnar voru út í gær. Veðurfræðingur segir spár hafa gengið...
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mætast...
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
📅 24.09.2026 👁️ 1
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
African elephants use dozens of different medicinal plants to treat themselves and their families when they are sick, research reveals.
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael ...
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 1
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
A new €5.14 million beach surveillance, rescue and assistance service has been launched by Arona Council, bringing longer lifeguard hours, additional ...
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
📅 24.09.2026 👁️ 1
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
The satellite station is used in part to provide internet coverage to neighbouring Ukraine, the government says.
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Björgunarsveitir frá ...
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
📅 24.09.2026 👁️ 1
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann...
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlen...
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
📅 24.09.2026 👁️ 3
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar Fréttin24. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
📅 24.09.2026 👁️ 2
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
📅 24.09.2026 👁️ 3
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 2
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
📅 24.09.2026 👁️ 2
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
📅 24.09.2026 👁️ 3
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
The Hawk T2 aircraft had been flying out of the RAF Valley station when it plummeted to the ground.
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
📅 24.09.2026 👁️ 1
Crashed RAF jet 'steered away from houses' before pilots ejected on Anglesey
Group Captain Gez Currie said the pilots were in hospital being cared for and were with their families.
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...