„Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ - Vísir

„Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ - Vísir

„Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ - Vísir

Bókin er sú fyrsta sem gefin er út fyrir aðstandendur fanga á Íslandi og jafnframt sú fyrsta sem fjallar um þetta efni frá sjónarhóli barnsins. Þar er fókusinn ekki á glæpinn, dóminn eða gerandann, heldur á barnið sem situr eftir með óvissuna, skömmina og þögnina. Með bókinni vill Ásdís bæði ná til barna í svipuðum aðstæðum og ýta við fullorðna fólkinu sem á að taka ábyrgð.

Tabú og skömm

Ég mun seint gleyma deginum í júlí 2009 þegar ég, þá 12 ára gömul, kom heim eftir að hafa leikið mér úti með litla bróður mínum. Hádegisfréttirnar voru nýbyrjaðar í sjónvarpinu og það fyrsta sem ég heyrði var að karlmaður hefði hlotið átta ára fangelsisdóm. Ég vissi strax um hvern var að ræða. Svipurinn á mömmu staðfesti það sem ég óttaðist. Þótt ég hefði vitað að það kæmi að þessu voru fréttirnar eins og að fá högg í magann. Heimurinn minn hrundi.“

Þannig hefst persónuleg frásögn Ásdísar í fyrri hluta bókarinnar.

Sem einkabarn föður síns upplifði Ásdís sig mjög einmana á þessum tíma. 

Það komu upp stórar spurningar og margvíslegar tilfinningar sem henni fannst hún ekki geta rætt við neinn, þar sem henni fannst enginn í kringum sig skilja aðstæðurnar.

„Ég frétti þetta allt í hádegisfréttunum. Það voru allir í sjokki og enginn vissi hvernig ætti að bregðast við. Í mínum huga ætti ákveðið ferli að fara af stað um leið og dómur fellur yfir foreldri sem á barn. Þá ætti spurningin strax að vera: Hvað þarf þetta barn? Hvernig drögum við úr skaðanum? Hvernig gerum við þetta eins bærilegt og hægt er?

Fullorðna fólkið í kringum mig var að reyna að hlífa mér, en það gerði hlutina í raun bara verri. Það sem vantaði var einfaldlega að einhver sæi að hér væri barn inni í myndinni og að þá ætti ákveðið stuðningsnet að fara í gang, með félagsráðgjöfum, sálfræðingum eða öðrum sem gætu bæði stutt mig og hjálpað mér að útskýra stöðuna fyrir jafnöldrum mínum.“

Málið var, sem fyrr segir, mjög áberandi í fjölmiðlum á sínum tíma.

„Þetta var út um allt, í sjónvarpinu og blöðunum, og auðvitað tók ég eftir því að krakkarnir í skólanum og fólk í kringum mann var að pískra um þetta. Og það gerði þetta allt svo miklu verra; það vissu allir af þessu, en maður mátti samt ekki vera að tala um þetta. Þetta var einhvern veginn svo mikið skömmustumál.“

Í bókinni eru skömm og einmanaleiki ákveðinn rauður þráður.

„Ég held að það sem hefði skipt mestu máli til að vinna á móti henni hefði verið umhyggja frá jafnöldrum og betra utanumhald frá fullorðnum. Ég hefði til dæmis viljað að það hefði verið talað við bekkinn minn, að þetta hefði verið útskýrt fyrir þeim á máli sem hentaði okkar aldri, í stað þess að krakkarnir væru bara látnir ráða í hlutina sjálfir út frá fréttum og einhvejrum upplýsingum héðan og þaðan. 

Ef það hefði verið talað við vinkonur mínar eða bekkinn minn og ég hefði fundið að fólk stæði með mér, hefði það breytt miklu. 

Börn hafa ekki sjálf þroskann eða færnina til að leiða svona erfiða umræðu. Þar þarf fullorðinn einstaklingur að stíga inn,“ segir Ásdís og bætir við:

„Mér finnst ennþá svo ótrúlegt að engum kennara eða skólayfirvöldum hafi dottið í hug að taka þetta samtal. Það hefði getað verið skólastjóri, námsráðgjafi eða einhver annar. Í staðinn var ég sífellt minnt á þetta á óbeinan hátt, til dæmis með símtölum og aðstæðum þar sem málið fylgdi mér inn í félagslífið. Þetta var alltaf í bakgrunninum.“

Ásdís var rétt að stíga inn í unglingsárin þegar pabbi hennar fór í fangelsi.Aðsend

Hún sá föður sinn síðast í kringum fermingu og eftir það hvarf hann að mestu úr daglegu lífi hennar. Það sem situr sterkast eftir er að enginn fullorðinn aðili né teymi tók við félagslega þættinum. Enginn spurði hana beint hvernig henni liði eða hjálpaði henni að skilja hvað væri að gerast.

Þetta gerðist einnig á þeim aldri þegar unglingsárin voru að ganga í garð, sem gerði þögnina og skömmina enn sterkari.

Óvægin umfjöllun

Þegar Ásdís lítur til baka segir hún það blasa við hversu mikið kerfið vanrækti hana og fjölskyldu hennar.

Hún bendir á að ef foreldri greinist til dæmis með krabbamein sé ákveðið stuðningsnet líklegra til að fara af stað í kringum barnið.

„En þegar foreldri fer í fangelsi eru viðbrögðin allt önnur. Barnið er þó enn bara barn, saklaust barn sem er að lenda í áfalli. Vegna þess að aðstæðurnar eru ekki nógu félagslega viðurkenndar þá er eins og þessi börn eigi minni rétt á stuðningi og aðstoð.“

Hún telur að þegar kemur að fjölmiðlaumfjöllun þá gleymist siðferðislega víddin oft.

„Ég skil vel að fjölmiðlar þurfi að ná athygli og að fólk verði forvitið þegar um stór mál er að ræða, sérstaklega þegar talað er um þungan dóm, fyrsta mál af ákveðinni tegund eða eitthvað sem vekur sterkar tilfinningar. En það þarf alltaf að staldra við og spyrja: ef þetta væri minn nánasti aðstandandi, myndi ég vilja sjá þetta sett fram svona? Ísland er svo lítið samfélag að það sem birtist opinberlega endurómar alls staðar. 

Maður getur setið á veitingastað og heyrt fólk við næsta borð tala um mál sem tengjast manni sjálfum. Það er veruleikinn í svona litlu landi

Mér finnst samfélagsmiðlarnir í dag líka hafa gert þetta ennþá verra. Þar leyfir fólk sér að taka aðra af lífi, jafnvel áður en niðurstaða er komin í dómsmáli eða allar hliðar liggja fyrir. Dómstóll götunnar er svo rosalega sterkur. Ég man sérstaklega eftir því þegar einhver fjölmiðill birti mynd sem ég sjálf hafði tekið af pabba mínum, af minni eigin síðu, undir fyrirsögninni „Ég er ekki skrímsli“. Það fannst mér langt yfir öll mörk. Síðan bætast við Facebook-hópar og önnur svæði þar sem fólk segir hitt og þetta eins og enginn muni nokkurn tíma sjá það. Núna, þegar hægt er að vera nafnlaus, hefur þetta harðnað enn frekar. Orðspor fólks getur verið eyðilagt á örfáum mínútum án þess að neinar stoðir séu fyrir ásökununum.“

Ísland langt á eftir

Börn fanga hafa stundum verið kölluð „hin gleymdu fórnarlömb“.

„Ég las skýrslu frá Umboðsmanni barna frá árinu 2022. Áður hafði ég í raun bara hugsað um þetta sem eitthvað sem gerðist og var búið. En þegar ég sá í skýrslunni hversu mikið verr Ísland stendur gagnvart þessum hópi en hin Norðurlöndin, fór ég að horfa á málið allt öðruvísi. Hér er til dæmis enginn barnafulltrúi fyrir börn fanga, eins og víða annars staðar á Norðurlöndunum. Það eru engar sérstakar upplýsingar eða úrræði sem mæta þessum börnum.“

Hún segir galið að Ísland sé svona langt á eftir hinum Norðurlöndunum.

„Hluti af skýringunni er eflaust fjárskortur. Þetta er fjársveltur málaflokkur, rétt eins og margt annað sem tengist fangelsiskerfinu og stuðningsúrræðum. Þegar ég fór að skoða þetta nánar áttaði ég mig á því hversu margt vantar hér á landi. Þetta varð líka til þess að ég fór að hugsa um nýleg mál hér á landi þar sem ungir menn hafa fengið þunga dóma og eiga ung börn. Ef barn á nýfæddann föður sem fær langan dóm þá sér það hann kannski ekki úti í samfélaginu fyrr en um fermingaraldur. Samt er enginn sem grípur það barn sérstaklega.“

Ásdís segir þó mikilvægt að hafa í huga að reynsla barna er alltaf mismunandi.

„Það fer ekki bara eftir því hvort það er mamma eða pabbi sem fer í fangelsi, heldur fyrst og fremst hvernig tengslin voru fyrir fram og hvaða aðrar aðstæður eru til staðar. Sum börn eru jafnvel þegar í fóstri eða búa við mjög flóknar aðstæður. Þess vegna tengir enginn við allt sem annar upplifir, jafnvel þótt grunnreynslan sé svipuð.“

Hún bendir líka á börn innflytjenda eða börn sem hafa flúið stríð, þar sem fleiri áföll bætast við.

„Þá verða málin oft enn flóknari. Þá bætast fleiri áföll við. Yfirleitt kemur það ekki eitt og sér að eiga foreldri í fangelsi. Þess vegna þarf stuðningurinn alltaf að vera einstaklingsmiðaður. Það er ekkert eitt úrræði sem hentar öllum. Maður verður alltaf að byrja á sömu spurningu: Hvað þarf þetta barn?“

Ótrúlegur viðsnúningur

Ásdís átti erfitt uppdráttar á unglingsárum; hún leiddist út í neyslu og var á tímabili að miklu leyti á vergangi, flakkandi á milli húsa án skráðs heimilis, þáði félagsbætur og var að eigin sögn hálfgert „götubarn“.

Henni tókst þó með undraverðum hætti að snúa lífinu algjörlega við.

Hún fór þrisvar sinnum í meðferð, þar á meðal eina í Svíþjóð, áður en hún náði sér á strik. Það var árið 2016. Síðan þá hefur leiðin einungis legið upp á við.

Það var ekki löngu eftir að Ásdís lauk þriðju og seinustu meðferðinni sem hún kynntist ungum manni sem heitir Hlynur Skúli.

Í dag eru þau í sambúð og eiga tvær litlar stelpur, Emblu Mjöll sem er fjögurra ára og Klöru Bríeti, sem kom í heiminn í júní á seinasta ári.

Undanfarin ár hefur hún starfað hjá Velferðarsviði Reykjavíkur í málefnum heimilislausra og í dag vinnur hún á Stuðlum.

Ég hef oft leitað í hlutverk eða störf þar sem hægt er að hjálpa öðrum í svipuðum aðstæðum og ég var í sjálf. Það er bara eitthvað í mér sem vill ekki að þessi reynsla hafi verið til einskis.

Vildi nýta eigin reynslu

Ásdís hóf nám í sálfræði í HR árið 2022.

„Ég held að ástæða þess að ég fór í sálfræði tengist þessari tilhneigingu minni til að vilja nýta það sem ég hef gengið í gegnum,“ segir hún.

Í lokaverkefni sínu í náminu skoðaði hún hvort börn fanga væru líklegri til að nota lögleg eða ólögleg vímuefni.

Ásdís hóf nám í sálfræði árið 2022 og þá fann hún að hún vildi nýta lífsreynslu sína til að bæta stöðu barna fanga á Íslandi. Þá kviknaði hugmyndin að skrifa bókina.Vísir/Vilhelm

„Niðurstöðurnar bentu þó síður til þess að fangelsisvist foreldris væri orsökin ein og sér, heldur skipti áfallasagan meira máli. Því fleiri áföll, því meiri líkur. Þegar ég hugsa til baka sé ég sjálfa mig á ACE-listanum, með mörg box merkt við: skilnaðarbarn, einelti og fleira. Þá spyr ég mig einfaldlega: Hvar var kerfið? Hvar var fagfólkið? Hvar var barnavernd? Það voru vissulega einhverjir aðilar inni í málinu, en áherslan var á praktíska hluti eins og nálgunarbann, ekki á langtímaáhrifin á barnið.“

Hún segir sálfræðinámið hafa hjálpað sér heilmikið við að skilja eigin sögu betur.

„Það veitti mér líka skýrari skilning á tilfinningum, hegðun og samhengi. Til dæmis þegar við lærðum um sefnæmi og leiðandi spurningar hugsaði ég til eigin reynslu af skýrslutökum. Mig langaði meira að segja að sjá upptökur af skýrslutökunni minni á sínum tíma en þegar að því kom hafði ég ekki kjark í það.

Sálfræðin hefur líka nýst mér í skrifunum og almennt í því hvernig ég set hlutina í samhengi. Þegar ég byrjaði í sálfræðinni á sínum tíma þá fann ég bara að mig langaði ótrúlega mikið að nýta þessa lífsreynslu í að bæta stöðu barna fanga á Íslandi. Þannig kviknaði í raun hugmyndin að bókinni.” 

Skrifaði bókina til „litlu Ásdísar“

Það var síðan fyrir tæpum tveimur árum að Ásdís hóf að skrifa bókina og koma henni í útgáfuferli.

Áður en hún hóf skrifin sökkti hún sér ofan í barnabækur um þennan málaflokk, þar á meðal bækur sem hafa verið gefnar út í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.

„Það sem ég sá var að enginn hafði skrifað svona bók út frá sinni eigin reynslu. Það varð til þess að ég fór að hugsa að þessi bók gæti átt erindi annars staðar líka, einmitt af því að nálgunin er svo persónuleg og frábrugðin.“

Mín ósk er að einhver í svipaðri stöðu og ég geti tengt við eitthvað í bókinni og vonandi upplifað sig minna ein,“ er meðal annars ritað aftan á kápu bókarinnar.

Ásdís skrifaði bókina út frá sinni eigin reynslu en með það að markmiði að börn úr mismunandi aðstæðum geti speglað sig í henni.Vísir/Vilhelm

Frá upphafi var Ásdís mjög meðvituð um að bókin ætti ekki að taka afstöðu til brotsins eða föður hennar sem geranda.

„Markmiðið var að halda sjónarhorninu hjá barninu sem situr eftir. Ég er auðvitað að tala út frá minni eigin reynslu en ég veit líka að það eru fleiri vinklar og fleiri fjölskyldusögur sem hefðu getað verið sagðar. Pabbi minn á til dæmis systkini og ýmislegt gekk á í tengslum við fjölskylduna, en ég valdi að halda fókusnum á mína hlið.“

Þegar hún byrjaði að skrifa skrifaði hún niður allt sem hún mundi og spurningarnar sem hún hafði. Hún skrifaði bókina í raun til „litlu Ásdísar“ eins og hún orðar það.

„Uppbygging bókarinnar var meðvituð, fyrri hlutinn er meira ætlaður eldri lesendum eða fullorðnum sem lesa með barninu, en miðjan er meira fyrir yngri börnin sjálf. Ég hugsaði þetta líka þannig að fullorðnu lesendurnir gætu metið hvað hentaði hverju barni miðað við aldur og þroska. Ég velti fyrir mér að skrifa allt í þriðju persónu og halda þessu meira almennu, en á endanum fannst mér sterkast að tengja þetta við eigin sögu án þess þó að bókin yrði bara um mig. Þess vegna valdi ég líka fjölbreytta karaktera svo fleiri gætu speglað sig í henni.“

Hún neitar því ekki að það hafi verið heilmikil berskjöldun að skrifa sína persónulegu sögu.

„En mér fannst engu að síður nauðsynlegt að setja mína sögu fremst svo fólk skildi hvaðan ég væri að koma. Ég fór fram og til baka með ákveðna kafla og ákveðin atriði, til dæmis hlutinn sem sneri að neyslusögunni minni, af því að þetta er bók sem börn munu lesa. Á endanum ákvað ég að hafa þetta allt inni, en á mjög hófstilltan hátt. 

Ég vildi ekki fara of djúpt, heldur nefna þetta þannig að það væri satt án þess að verða yfirþyrmandi.

Vonarhönd

Leiðin að útgáfu bókarinnar var ekki hefðbundin eins og Ásdís lýsir því. Ferlið hefur verið tímafrekt, meðal annars vegna styrkjaumsókna og þess hversu viðkvæmt málefnið er.  

„Ég hafði fyrst samband við bókaútgáfur af því ég vissi ekki hvernig ég ætti annars að snúa mér í þessu. En mjög fljótt sá ég að þetta væri ekki bók sem myndi ganga beint inn í hefðbundinn útgáfuheim eða verða hluti af jólabókaflóðinu. Þá fór ég að hugsa um að mikilvægt væri að börn fanga gætu fengið bókina ókeypis, því stór hluti þeirra myndi annars líklega aldrei komast í hana af fjárhagsástæðum. Þá hætti hefðbundin útgáfuleið að „meika sens“. Stærsti hluti vinnunnar varð því að sækja um styrki og finna leið til að koma bókinni út.

Ásdís stofnaði félagasamtökin Vonarhönd utan um verkefnið og hlaut styrk frá Bjargráði, Afstöðu og Reykjavíkurborg.

Verkefnið er ekki sprottið út frá gróðavon. Bókin verður börnum fanga að kostnaðarlausu á aldrinum sex til átján ára, þeim sem eiga eða hafa átt foreldri í fangelsi. Bækur verða einnig seldar, en eingöngu til að halda verkefninu sjálfbæru og tryggja áframhaldandi prentun.

„Ég tek ekki krónu fyrir,” segir hún.

„Þetta er einfaldlega bara mitt framlag til málaflokksins. Ég fæ bara ánægjuna út úr þessu.”

Markmið Ásdísar er tvíþætt: að börn í þessum aðstæðum upplifi sig ekki jafn ein og að skömmin sem hefur hvílt yfir þessum málaflokki minnki.Vísir/Vilhelm

Vill útrýma skömminni

Ásdís er með hugmyndir að fleiri bókum, meðal annars fyrir yngri börn, með einfaldari karakterum og söguþræði. Hana langar einnig að lesa bókina í skólum og nota hana til að opna umræðuna víðar.

Bókin kemur út þann 7. maí næstkomandi og líkt og áður segir er þetta fyrsta bókin sem gefin er út fyrir aðstandendur fanga á Íslandi.

„Markmiðið með þessu öllu er í grunninn tvíþætt: að börn í þessum aðstæðum upplifi sig ekki jafn ein og að umræðan verði ekki jafn skömm hlaðin og hún hefur verið. Þetta eru ekki börnin sem hafa brotið af sér. Mig dreymir einfaldlega um samfélag þar sem þau þurfa ekki að bera þessa skömm. Þetta er bara fyrsta skrefið. Mér finnst þó mikilvægt að árétta að þegar ég tala um vanrækslu af hálfu kerfisins þá er ég ekki bara að tala um mína reynslu. Ég er að tala um stóran hóp barna sem kerfið hefur í reynd ekki mætt,“ segir Ásdís að lokum en á einum stað í bókinni stendur:

Við, börn fanga, eigum öll okkar eigin sögu. Við getum tengt við sumt í sögum annarra en ekki endilega allt. Við upplifum atburði líka á mismunandi hátt.

Við getum tengt við mismikið, hvort sem það er eitt atriði eða fleiri. Þótt bókin beri heitið Pabbi fór í fangelsi þá er hún hugsuð fyrir öll þau sem hafa upplifað að eiga ástvin í fangelsi.

Þín saga kann að vera allt öðruvísi en mín en samt sem áður þá vona ég að lestur bókarinnar geti veitt einhverjum von, skilning eða huggun. Ef ég næ að hjálpa einhverjum einum með því að deila því sem ég gekk í gegnum og hvernig mér leið þá hefur markmiðinu verið náð með skrifum þessarar bókar.“

#ekkert #fangelsi #greip #pabbi #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262870829d/-thad-var-ekkert-sem-greip-mig-thegar-pabbi-minn-for-i-fangelsi-

📰 Aðrar fréttir

Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 0
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 0
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 0
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 0
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, s...
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að ...
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
📅 25.07.2026 👁️ 1
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í ...
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
Íbúar í Piddington, örlitlu þorpi í Oxfordshire á Englandi, undirbúa táknræna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Ástæðan er fyrirhuguð...
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...