Mótorhjólamaðurinn Ómar Geirsson slapp með skrekkinn í gær þegar mótorhjól hans brann til kaldra kola.
„Ég er búinn að hjóla á því frá Reykjavík til Siglufjarðar og frá Siglufirði til Akureyrar, en í gær varð ég var við bilun í hjólinu á Hámundstaðarhálsi á leið heim frá Akureyri. Ég steig þá af því og skömmu síðar stóð það í ljósum logum,“ segir Ómar í samtali við mbl.is.
Hjólið var af gerð Honda Goldwing, 1988 árgerð en Ómar var aðeins búinn að eiga hjólið í 6 daga og var þar að auki nýbúinn að fara með hjólið í skoðun. Orsök brunans er enn óráðin en þrátt fyrir það telur hann ólíklegt að hægt hafi verið að fyrirbyggja brunann.
„Það er erfitt að segja til hvað getur hafa orsakað brunann, það gæti t.d. hafa verið mikil tjörublæðing þarna á veginum en hún getur sest á bremsurnar og fest þær. Þetta er allavega ekki eitthvað sem sést í skoðun, og það var ekkert að hjólinu.“
Ekkert eftir af hjólinu
Ómar þakkar slökkviliði Dalvíkur fyrir að sýna skjót viðbrögð en þegar það bar að garði var þó ekkert eftir af hjólinu.
„Það er voða lítið hægt að rannsaka þetta, því þetta brann allt. Númeraplatan slapp ekki einu sinni og ventlalok og annað sem er úr málmi bráðnaði bara inn í vélina.“
„Maður þakkar bara fyrir að hafa sloppið óhultur,“ segir Ómar að lokum.
