Engin ástæða er fyrir stjórnvöld í Bandaríkjunum að beita hótunum til að koma upp vörnum á Grænlandi. Þetta segir Lisa Murkowski öldungadeildarþingmaður Repúblikana, sem var ásamt fleiri þingmönnum á ferð um norðurslóðir.
Átta bandarískar þingkonur fóru í þessa ferð um norðurslóðir og fóru meðal annars til Alaska, Grænlands og Svalbarða. Ferðinni lauk hér á landi í vikunni þó aðeins þrjár af konunum hafi komist hingað. Tilgangurinn var að kynna norðurslóðir fyrir þingmönnunum, einkum varnarmál og vísindastarf.
Murkowski segir meirihluta Bandaríkjamanna ósammála Donald Trump forseta Bandaríkjanna um að Bandaríkin þurfi að eignast Grænland til að tryggja þjóðaröryggi. Ef þeir vilji frekari varnir þar, eigi einfaldlega að taka samtalið.