Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) tilkynnti Icelandair í gær að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. Þeir hafa staðið í kjaradeilu við félagið undanfarna mánuði.
Grundvallaratriði að samningsaðilar nái saman
Birgir Olgeirsson fréttamaður ræddi málið við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
„Þetta er alltaf alvarlegt mál upp á flug til og frá landinu. Ég vona bara að samningsaðilar leysi málið, það er tími til stefnu.“
Árið 2010 samþykkti Alþingi frumvarp um lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair en þáverandi samgönguráðherra sagði að ekki væri rými í samfélaginu fyrir átök og deilur af því tagi.
Hvert er þitt mat á stöðunni í samfélaginu í dag með tilliti til þess. Ert þú að upplifa það?
„Þetta er í höndum samningsaðila núna og þeir verða að halda áfram og finna lausn á þessari deilu. Það er grundvallaratriði, algjört grundvallaratriði. En við höfum ekki rætt neitt slíkt, að setja lög á verkfallið. Það hefur ekki komið til umræðu.“
Miklir hagsmunir undir og ábyrgð mikil
Líkt og Vísir fjallaði um í gær gæti verkfall flugvirkja kostað allt að milljarð króna á dag.
„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi og ábyrgð samningsaðila er mjög, mjög mikil. Þeir verða að nýta tímann vel fram að boðuðu verkfalli. Það er grundvallaratriði.“
Þannig að þið stígið ekkert inn í viðræður eins og er?
„Ég ætla ekki að fara að svara vangaveltum um slíkt, enda hefur það ekki verið rætt og ekki komið að þeim tímapunkti.“