„Það er ó­satt, ó­satt með öllu“ - Vísir

„Það er ó­satt, ó­satt með öllu“ - Vísir

„Það er ó­satt, ó­satt með öllu“ - Vísir

„Elsku vinur minn, Magnús Þór, sagði í fréttum RÚV í gærkvöldi að hann hefði verið að frétta af þessu með einkunnagjöfina hjá mér í ræðunni í gærmorgun. Það er ósatt, ósatt með öllu. Hann var algjörlega fullmeðvitaður um það sem ég er að hugsa, algjörlega,“ sagði Inga Sæland í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Kveðst hún hafa rætt málið við hann áður. „Hann veit nákvæmlega hvert hugur minn hefur stefnt. Nákvæmlega.“

Fram hefur komið að sumir kennarar hafi gengið úr salnum á meðan ráðherra flutti ræðu sína á þingi Kennarasambandsins í gær og lýsti formaðurinn yfir gríðarlegum vonbrigðum með orð ráðherra á sama vettvangi.

Ekki séð neinn ganga út

Í ályktun sem þing Kennarasambandsins samþykkti í dag er lýst yfir „alvarlegum áhyggjum af framgöngu mennta- og barnamálaráðherra og þeim viðhorfum sem hann hefur sýnt í garð skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á.“

„Stefnumörkun á grundvelli popúlískra, pólitískra slagorða er hvergi líkleg til árangurs,“ segir þar jafnframt. Þá kölluðu kennarar eftir „breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tóni í stefnumörkun stjórnvalda og samskiptum við skólasamfélagið.“

Klippa: Segist hafa fundið mikinn stuðning frá kennurum

Inga segist ekki hafa orðið vör við það að einhverjir kennarar hafi gengið út úr salnum á meðan hún flutti erindi sitt í gær.

„Ég er nú svo heppin stundum að vera sjónlaus, þannig að ég tek ekkert eftir því hvort fólk er að koma eða fara. Ég stend þarna bara og segi það sem mér býr í brjósti og ég kom til þess að segja.“

„Þeir verða bara að halda áfram að vera sárir“

Inga sat í dag vinnustofu með ungmennum um símanotkun í skólum og aðgang þeirra að samfélagsmiðlum en til stendur að banna snjallsímanotkun í grunnskólum landsins.

Við heyrðum í gær að kennarar eru eitthvað sárir yfir því að vera ekki með í ráðum varðandi þetta.

„Já, þeir verða bara að halda áfram að vera sárir greyin. Vegna þess að ég verð að viðurkenna, það er einfaldlega ótrúlegt en það virðist ekki mega nefna neitt á sviði menntamála, án þess að hluti af einmitt forystu kennara sjái því allt til foráttu. Og mig langar að nefna nokkur dæmi svona að gamni ef þið viljið heyra,“ sagði Inga í Reykjavík síðdegis.

Nefnir hún þá PISA-könnunina, einkunnaskalann, birtingu einkunna, fjölda kennsludaga, kostnaðinn við rekstur menntakerfisins, lestraraðferðir, lengd kennaranáms, tilkomu sameiginlegs leyfisbréfs fyrir öll skólastig, fjarnám, fjölda námsbrauta og skóla án aðgreiningar.

„Og jafnvel vilja sumir ekki einu sinni að stjórnvöld fari að skipta sér af því hvort börnin séu með síma í skólunum.“

Elski kennarastéttina

Aðspurð hvort kennarar hafi ekki einfaldlega verið að kalla eftir auknu samráði við stjórnvöld nefnir Inga að fulltrúar Kennarasambandsins hafi verið með fulltrúa í svokölluðum spretthópum um skólamál sem hófu störf í febrúar.

Þá hafi hún nokkrum sinnum hitt Magnús formann sem Inga lýsir sem „okkar elskulega kjarabaráttumeistara Kennarasambandsins.“

„Þannig að það er ekkert sem ég myndi segja að hefði ekki verið í samtali, fyrir utan það að ég elska kennarastéttina út af lífinu og finnst þau vera mikilvægasta stéttin í heiminum og án þeirra þá ættum við afskaplega litla möguleika.“

Muni ekki horfa á hlutina fara niður á við

Inga segir að námsárangur íslenskra barna sé óviðunandi og þörf sé á að gera betur.

„Ég mun aldrei verða sá menntamálaráðherra sem situr hér og horfir á hlutina fara niður á við, alls ekki. Ég er komin sem verkfæri til þess að reyna að snúa þessari óheillaþróun við. Ég rétti fram hendur til kennara, ég bið um stuðning, ég bið um hjálp og þeirra fallega hjarta, því ég veit að við getum gert svo miklu, miklu betur.“

Hún hafi einnig fundið fyrir stuðningi og góðum undirtektum frá kennurum.

„Ég er að fá alveg ofboðslega jákvæðar og góðar undirtektir og miklar áskoranir og kærleika og ég er umvafin í því. Þannig að það er það sem fleytir manni áfram, að gefast aldrei upp og ég ætla mér að vinna verk mín að vanda hér eftir sem hingað til. Ég mun gera allt fyrir börnin okkar og þeirra framtíð, allt sem í mínu valdi stendur.“

Bókstafakerfið sé áskorun fyrir nemendur

Inga segir ríkjandi einkunnakerfi í grunnskólum sem byggi á bókstöfum vera áskorun fyrir foreldra, nemendur og þegar kemur að því að útskrifa börn úr tíunda bekk.

„Þetta er algjör óskýrleiki sem felst í þessu bókstafakerfi. Það er ekkert gagnsæi, foreldrar gera sér enga grein fyrir því hvar börn raunverulega eru stödd frekar en þau sjálf. Skólameistarar framhaldsskólanna verða að byrja á því þegar þessi ungmenni eru að koma upp í framhaldsskólann að umbreyta þessu bókstafakerfi yfir í talnakerfið og annað slíkt.“

Formaður Kennarasambandsins hefur sagt að ekki sé um að ræða auðvelda kerfisbreytingu heldur væri þetta mikil breyting á vinnulagi kennara.

Inga hyggst síðar meir ráðast í heildstæða endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla. „Ég vona að vinir mínir í KÍ séu tilbúnir að taka utan um það verkefni með mér.“

#vísir #ósatt #öllu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262870435d/-thad-er-osatt-osatt-med-ollu-

📰 Aðrar fréttir

Segir rökrétt fyrir ESB að semja um sérlausn í sjávarútvegsmálum
📅 08.06.2026 👁️ 0
Segir rökrétt fyrir ESB að semja um sérlausn í sjávarútvegsmálum
Sendiherra Íslands í Brussel og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið 2009-2013, Stefán Haukur Jóhannesson metur það svo a...
Vaxtaplanið sé tíma­skekkja - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
Vaxtaplanið sé tíma­skekkja - Vísir
„Rithöfundasamband Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að endurskoða atvinnustefnu sína og vaxtarplan fram til ársins 2035, leggja áherslu á að rækta ...
Russia's fuel crisis intensifies as Ukraine steps up strikes on occupied territories
📅 08.06.2026 👁️ 0
Russia's fuel crisis intensifies as Ukraine steps up strikes on occupied territories
Ukraine's sustained campaign of drone attacks on Russian-occupied territories is disrupting Moscow's supply lines and intensifying a fuel crisis alrea...
SpaceX's stock market blast-off could be Musk's biggest gamble yet
📅 08.06.2026 👁️ 0
SpaceX's stock market blast-off could be Musk's biggest gamble yet
It's 07:25 am, 13 October 2024, at Starbase, near Boca Chica on the Texas side of the US/Mexico border, and on the launch pad stands the biggest rocke...
Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 0
Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu - Vísir
Þann 29. september 2025 ók sérsveitin fram á umferðarslys en er þeir nálguðust steig maðurinn, sem síðar var ákærður, út úr bílnum ökumannsmegin. Að m...
'Lives still at risk' from unregulated baby sleep industry after BBC investigation
📅 08.06.2026 👁️ 0
'Lives still at risk' from unregulated baby sleep industry after BBC investigation
Lives are "still at risk" from the unregulated baby sleep industry, a parliament debate was told last night.MPs are now urging the government to set o...
Driving test booking rules tightened after thousands of no shows
📅 08.06.2026 👁️ 0
Driving test booking rules tightened after thousands of no shows
Learner drivers are now only able to swap their test to the three centres nearest to their original booking location in a bid to cut down waiting time...
Drug gangs 'cuckooing' hundreds of homes a week, police tell BBC
📅 08.06.2026 👁️ 0
Drug gangs 'cuckooing' hundreds of homes a week, police tell BBC
Hundreds, if not thousands, of people's homes are being taken over by criminals every week in the UK, usually to store and deal drugs, police chiefs h...
„Við erum að nota tækni sem við skiljum ekki að fullu“
📅 08.06.2026 👁️ 0
„Við erum að nota tækni sem við skiljum ekki að fullu“
Sífellt fleiri hafa áhyggjur af stjórnlausri þróun gervigreindar. Evrópusambandið hefur komið á fót vísindanefnd um gervigreind.Halldóra Mogensen, fyr...
Skuld­bundu sig í fjögur ár en farin eftir á­tján mánuði - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Skuld­bundu sig í fjögur ár en farin eftir á­tján mánuði - Vísir
Þann 30. nóvember 2024 voru 63 þingmenn kjörnir inn á Alþingi. Þórður Snær Júlíusson tilkynnti í kosningabaráttunni að hann hygðist ekki taka sæti eft...
„Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
„Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ - Vísir
Önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um stofnun sérstaks innviðafélags sem ætlað er að annast fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja hefu...
Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta - „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta - „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“ - DV
Í nýrri færslu á Facebook-síðu samtakanna Villikettir Vesturlands er sögð saga kattar sem hefur verið í vörslu samtakanna frá 1. júní. Miðað við lýsin...
Iran and Israel say they have halted strikes after first exchange of fire since truce
📅 08.06.2026 👁️ 1
Iran and Israel say they have halted strikes after first exchange of fire since truce
Iran and Israel say they have halted attacks on each other, after the two countries exchanged fire for the first time since April's truce.Israel's Pri...
Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu - DV
Það síðasta sem þú vilt gera er að eyðileggja stemninguna á meðan á kynlífi stendur og að segja þessa fimm hluti mun gera einmitt það, samkvæmt kynlíf...
Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær - Vísir
Það var um áramótin sem Konukot flutti úr Eskihlíð og í Ármúla. Undanfarið hefur borið á umfjöllun um meint ófremdarástand í götunni vegna þessa. Þann...
Idris Elba opnar sig um James Bond orðróminn: „Bond er svo óraunverulegur“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
Idris Elba opnar sig um James Bond orðróminn: „Bond er svo óraunverulegur“ - DV
Leikarinn Idris Elba segir að það hafi aldrei neitt verið til í því að hann tæki að sér hlutverk ofurnjósnarans James Bond. Elba er í ítarlegu viðtali...
Aðal­steinn hleypur í skarðið - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Aðal­steinn hleypur í skarðið - Vísir
„Aðalsteinn kemur til þess að aðstoða í málinu að hluta til því hann er náttúrulega mjög góður í því og sérfræðingur og að hluta til því ég þarf að sæ...
Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
Sérsveitin taldi mann brotlegan sem slapp með skrekkinn eftir að hafa kennt huldumanni um - DV
Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands vestra af ákæru fyrir ölvun við akstur. Var hann sakaður um að hafa ekið af stað af balli undir áh...
Vilja að hætt verði við lokun hjúkrunarheimilis á Selfossi
📅 08.06.2026 👁️ 2
Vilja að hætt verði við lokun hjúkrunarheimilis á Selfossi
Aðstandendum hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi hefur verið tilkynnt að því verði lokað á næsta ári. Skortur er á hjúkrunarrýmum og ráðherra ky...
Varð ást­fanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Varð ást­fanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi - Vísir
Hér má sjá viðtalið í heild sinni: Anders vinnur með eld, gler og þolinmæði á einstakan hátt. Líf hans tók stakkaskiptum eftir að hann greindist með k...
Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“ - DV
Breska raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Katie Price þarf að borga háa fjárhæð til að leysa nýja eiginmanninn sinn úr fangelsi í Dubai. Price k...
„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir for­eldra sinna“ - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir for­eldra sinna“ - Vísir
Verði frumvarp dómsmálaráðherra samþykkt verður brottfararstöð fyrir útlendinga opnuð hér á landi. Allsherjar- og menntamálanefnd hefur metið frumvarp...
Fágætur safnkostur á Minjasafninu
📅 08.06.2026 👁️ 1
Fágætur safnkostur á Minjasafninu
Karl Wener Schulte fagnar 80 árum í dag og varði deginum á Akureyri þar sem hann afhenti Minjasafninu síðustu landakortin í safni sínu. Karl Werner og...
Héraðsdómur Óslóar vill leysa Høiby úr gæsluvarðhaldi
📅 08.06.2026 👁️ 1
Héraðsdómur Óslóar vill leysa Høiby úr gæsluvarðhaldi
Héraðsdómur Óslóar hefur úrskurðað að Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verði látinn laus til að vera með móður sinni sem er ...
Skemmdir unnar á friðuðum fornleifum
📅 08.06.2026 👁️ 1
Skemmdir unnar á friðuðum fornleifum
Spellvirki hafa verið unnin á friðuðum fornleifum nærri Hafnarfjarðarkaupstað. Mannvirki var reist í 150 ára gamalli fjárborg sem talið er að nýta eig...
Diljá Mist: „Yfir 10 milljón!“ – Helgi Hrafn svarar: „Þá kemur þú og mótmælir því eina af viti“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
Diljá Mist: „Yfir 10 milljón!“ – Helgi Hrafn svarar: „Þá kemur þú og mótmælir því eina af viti“ - DV
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók til máls á Alþingi í morgun um verndarsamkomulag Evrópusambandsins. „Reglur sem ganga út ...
Southern Lights timelapse filmed from SpaceX Dragon shuttle
📅 08.06.2026 👁️ 1
Southern Lights timelapse filmed from SpaceX Dragon shuttle
This occurrence of aurora australis, or Southern Lights, was captured by NASA astronaut Jessica Meir.
Vilhjálmur Árnason lætur af þingmennsku
📅 08.06.2026 👁️ 1
Vilhjálmur Árnason lætur af þingmennsku
Vilhjálmur Árnason þingmaður gerði forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni í dag. Hann greindi frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.Vilhjá...
Tveggja ára fangelsisdómur fyrir umferðarlagabrot
📅 08.06.2026 👁️ 2
Tveggja ára fangelsisdómur fyrir umferðarlagabrot
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt af Héraðsdómi Reykjaness fyrir umferðarlagabrot. Manninum er einnig g...
Hvert tilfelli mæðradauða vegur afar þungt
📅 08.06.2026 👁️ 1
Hvert tilfelli mæðradauða vegur afar þungt
Mæðradauði er vandamál víða í heiminum þrátt fyrir miklar framfarir í læknavísindum. Hann er mjög fátíður á Íslandi, ein kona hefur látist á fimm ára ...
Vil­hjálmur sagði af sér þing­mennsku - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Vil­hjálmur sagði af sér þing­mennsku - Vísir
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins tók við í Reykjanesbæ eftir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar en Vilhjálmur var oddviti Sjálfst...
And­mæla fundar­boði aðal­fundar Sósíal­ista - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
And­mæla fundar­boði aðal­fundar Sósíal­ista - Vísir
Sara Stef. Hildardóttir, ein þeirra sem standa fyrir andmælunum, segir þetta vera brot á félagalögum í samtali við Vísi. „Það er félagafrelsi í landin...
Epstein victim says she had dinner at Andrew's palace apartment
📅 08.06.2026 👁️ 1
Epstein victim says she had dinner at Andrew's palace apartment
A woman abused by the convicted sex offender Jeffrey Epstein has said they had dinner in Andrew Mountbatten-Windsor's private apartments in Buckingham...
Konukot og börn í brottfararstöð í brenni­depli í kvöld­fréttum - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 1
Konukot og börn í brottfararstöð í brenni­depli í kvöld­fréttum - Vísir
Sprengjum rigndi á víxl í Ísrael og Íran í gærkvöldi og nótt en það sem af er degi hafa engar fregnir borist af árásum en Bandaríkjaforseti sendi þeim...
World Cup 2026: Somali referee Omar Artan to miss tournament after being barred from entering US
📅 08.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: Somali referee Omar Artan to miss tournament after being barred from entering US
Omar Artan, who was set to be the first Somali to referee at the World Cup finals, is dropped from the list of officials after he was denied entry to ...
5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið - DV
Það kannastkannski einhver pör við spurninguna: „Jæja elskan, er það Netflix, Disney+ eða Prime í kvöld?“ en að mati sálfræðingsins Mark Travers þarf ...
Philippines: 35 dead after earthquake off Mindanao coast
📅 08.06.2026 👁️ 2
Philippines: 35 dead after earthquake off Mindanao coast
At least 35 people have died after a magnitude-7.8 earthquake struck off the coast of Mindanao island in the southern Philippines, officials say.The q...
Gat ekki höfðað skaðabótamál gegn SAS á Íslandi
📅 08.06.2026 👁️ 1
Gat ekki höfðað skaðabótamál gegn SAS á Íslandi
Tveimur málum gegn flugfélaginu SAS, þar sem farið var fram á skaðabætur vegna flugferða, var vísað frá Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Fyrirtæk...
Sindri Freyr í haldi í Taílandi – „Við fáum engar upplýsingar um hvernig honum líður“
📅 08.06.2026 👁️ 3
Sindri Freyr í haldi í Taílandi – „Við fáum engar upplýsingar um hvernig honum líður“
Íslendingur sem saknað var á Taílandi er í haldi innflytjendayfirvalda þar í landi. Ekkert hafði spurst til Sindra Freys Jenssonar í rúmlega tvær viku...
England's Ben Stokes & Gus Atkinson investigated over nightclub incident
📅 08.06.2026 👁️ 2
England's Ben Stokes & Gus Atkinson investigated over nightclub incident
An incident at a nightclub involving England cricket captain Ben Stokes, pace bowler Gus Atkinson and a Saracens academy player is being investigated ...
Sikh group calls for public inquiry into Henry Nowak's death
📅 08.06.2026 👁️ 2
Sikh group calls for public inquiry into Henry Nowak's death
The government should hold a public inquiry into the "failures" surrounding the death of Henry Nowak, a Sikh lobby group has said.The 18-year-old stud...
Sigríður Hagalín svarar gagnrýnendunum: „Að gefnu tilefni“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 2
Sigríður Hagalín svarar gagnrýnendunum: „Að gefnu tilefni“ - DV
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttamaður á RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins, segir þáttinn í kvöld ekki snúast um hvort Ísland eigi að ganga í E...
Séra Guðni Már kveður Ís­land - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Séra Guðni Már kveður Ís­land - Vísir
Guðni mun hafa aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Þjóðkirkjan greinir frá ráðningunni en staðan var auglýst laus til umsóknar í vor. Í tilky...
Marius látinn laus - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Marius látinn laus - Vísir
Veikindi Mette-Maritar krónprinsessu hafa ágerst verulega á undanförnum mánuðum en hún hefur um nokkur ár glímt við svokallaða lungnatrefjun. Marius h...
Færri tilkynningar um kynferðisbrot en fleiri um ofbeldi
📅 08.06.2026 👁️ 2
Færri tilkynningar um kynferðisbrot en fleiri um ofbeldi
Tilkynningum um kynferðisbrot fækkaði um rúmlega helming á höfuðborgarsvæðinu í maí en fleiri brot hafa verið tilkynnt til lögreglu það sem af er ári ...
Elkem dregur tímabundið úr framleiðslu
📅 08.06.2026 👁️ 2
Elkem dregur tímabundið úr framleiðslu
Elkem hefur tekið ákvörðun um að stilla af framleiðslu sína vegna tolla Evrópusambandsins. Slökkt var á einum ofni, þeim stærsta, af þremur ofnum í já...
Magga Frið­riks leitar til al­mennings eftir stuðningi - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 3
Magga Frið­riks leitar til al­mennings eftir stuðningi - Vísir
Þá var Margréti gert að greiða málsvarnarkostnað sem slagar hátt í milljón. Margrét ritar mikla grein í málgagn sitt Fréttina þar sem hún rekur málið....
Xi í heim­sókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um á­hrif í Pyongyang - Vísir
📅 08.06.2026 👁️ 2
Xi í heim­sókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um á­hrif í Pyongyang - Vísir
Þetta er í fyrsta sinn í sjö ár sem Xi fer til Norður-Kóreu en leiðtogarnir hittust síðast í Peking í september, þegar Kim fór þangað og virti fyrir s...
Frakkar fara yfir 70.000 mál tengd brotum á börnum
📅 08.06.2026 👁️ 2
Frakkar fara yfir 70.000 mál tengd brotum á börnum
Dómsmálaráðherra Frakklands, Gerald Darmanin, kallaði saman saksóknara landsins í dag og fól þeim að fara yfir 70.000 mál sem tengjast kynferðisbrotum...
Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“ - DV
📅 08.06.2026 👁️ 1
Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“ - DV
Fyrrum sigurvegari raunveruleikaþáttanna Love Island telur sig vita hvaða breytingar þarf að gera til að þættirnir verði aftur jafn dramatískir og þei...