„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ - Vísir

„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ - Vísir

„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ - Vísir

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð til og greindi hlutinn sem reyndist svo ekki vera sprengja.

„Strákarnir höfðu dröslað þessu með sér heim sem endaði svo uppi á eldhúsborðinu heima hjá mér. Með hnút í maganum yfir hvað þetta væri handsprengjulegt þá google linsaði ég þetta og síðan leitaði ég leiðbeininga og sendi myndir á Lhg sem höfðu þá samband og komu til að skoða þetta,“ sagði Elísa í gær í íbúahópi Skagfirðinga í gær.

Elísa segir í samtali við fréttastofu að strákarnir hafi verið að leika sér við heimili foreldra hennar við Miklavatn þegar þeir fundu hlutinn.

„Það er hægt að labba með vatninu að tanga þar sem er fjara og þeir fundu þetta þar. Hún hefur líklega skolast upp úr vatninu,“ segir hún.

Fyrst héldu þau að um sprengju væri að ræða en svo reyndist ekki vera. Aðsend

Eins og sést á myndunum er kannski ekki alveg hægt að gefa sér að um sprengju sé að ræða, nema maður þekki til, og því var Elísa ekki alveg viss til að byrja með um hvað var að ræða.

„Ég hélt fyrst að þetta væri bara eitthvað ryðgað bíladót. Það skolast alls konar upp þarna og maður heldur auðvitað ekkert endilega að það sé sprengja og ég hélt að þetta gæti kannski verið dráttarvélarklossi eða eitthvað slíkt,“ segir Elísa og að hún hafi þá ákveðið að setja mynd af þessu í myndaleit á Google.

Fékk hnút í magann

„Þá fékk ég hnút í magann, þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja,“ segir hún og að hún hafi sett mynd á Reddit og fengið þar fljótt upp frá öðrum notendum að þeir teldu líklegt að um sprengju væri að ræða og leiðbeiningar um að hafa samband við Landhelgisgæsluna.

„Ég sendi þeim myndir af þessu og þeir heyrðu svo í mér í hádeginu. Sá sem ég talaði við spurði hvar þetta væri staðsett, hvort þetta væri nokkuð inni í húsinu, þakkaði kærlega fyrir myndirnar og keyrði svo hingað á sprengjusveitarbílnum.“

Hluturinn sem strákarnir fengu. Aðsend

„Ég sá drenginn alveg fölna þegar ég sagði honum að sprengjusveitin væri á leiðinni,“ segir hún en að sprengjusveitarmaðurinn hafi fljótlega séð að sprengjan hafi verið búin að springa og að hún hafi því verið hættulaus.

Hann hafi tekið sprengjuna og svo rætt við drengina um sprengjuna og hvernig hún var notuð. Drengurinn hafi verið spenntur fyrir því vegna mikils áhuga á seinni heimsstyrjöldinni.

„En þetta er ekki í fyrsta sinn sem sprengjusveitin kemur til okkar. Einu sinni fundum við sveitt dýnamít í fjárhúsinu,“ segir Elísa og að bændur hafi hér áður fyrr notað það til að sprengja sjálfir upp steina.

Hlutinn á eldhúsborðinu, síðar fóru þau með hann út. Aðsend

Reyndist ekki vera sprengja

Ásgeir Guðjónsson, sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni, segir Elísu og strákana hafa brugðist hárrétt við í gær. Það hafi þó komið í ljós í morgun að ekki hafi verið um sprengju að ræða en ekki hafi verið hægt að fullyrða það fyrr en í dag.

„Verklagið er þannig að við getum ekki útlokað og ef hluturinn er með einhver líkindi um að hann gæti verið sprengja, þá er verklagið að fara á staðinn,“ segir hann og að á meðan ekki er vitað nákvæmlega hvað er um að ræða sé vísað til hlutarins sem „torkennilegs hlutar“ þar til búið er að greina hann betur.

„Myndir gefa bara ákveðnar upplýsingar, mál og stærð, sem skiptir máli líka svo við getum sett þetta upp í kerfinu okkar.“

Ásgeir við störf. Landhelgisgæslan

Greina stundum að hlutur sé hættulaus

Ásgeir segir flókið að skoða hluti frá fyrri og seinni heimsstyrjöldinni því margt af því sé ekki í rafrænum kerfum og því þurfi að fletta því upp handvirkt og skoða það á staðnum.

„Ef það er hlutur sem þú metur torkennilegan og mögulega hættulegan, þá er verklagið að fara á staðinn og kanna málið. Stundum er það bara til að greina að hluturinn sé hættulaus en stundum er það æfingasprengja,“ segir Ásgeir en talið var í fyrstu að hluturinn sem fannst í Skagafirði væri slík sprengja.

„Við töldum það mjög líklegt í gær þegar við sóttum hann en það var útilokað í morgun,“ segir hann og að enn liggi ekki fyrir hvað það var sem strákarnir fundu.

Dæmi um sprengjur sem sprengjusveitin hefur fundið og eytt. Landhelgisgæslan

Hann segir mikilvægast að Elísa hafi gert allt rétt í þessum aðstæðum.

„Hún gerði allt hárrétt, það á að tilkynna og við viljum helst að fólk taki mynd strax og hreyfi hlutinn ekki og tilkynni til okkar,“ segir hann og að hægt sé að hringja í Neyðarlínuna eða senda tölvupóst með myndum.

Hann segir sprengjusveitina sinna um 120 verkefnum árlega tengdum sprengjuverkefnum af ýmsum stærðum og að hvert sumar sinni sveitin um 20 til 30 verkefnum vegna hluta sem fólk finnur. Hann segir algengt á þessum árstíma að fólk finni hluti sem séu að koma í ljós.

„Það sem gerist núna er að frost í jörðu lyftir hlutum upp úr jörðinni, það eru æfingarsvæði hér og þar um landið þar sem var verið að æfa í seinna stríði eða hreinlega voru að skjóta niður þýskar flugvélar. Það kemur upp úr jörðinni og fólk finnur þetta svo í göngutúr,“ segir Ásgeir.

Hluturinn sem strákarnir fengu. Aðsend

Ryðgðað dót á fjöllum líklegast sprengja

Hann segir til dæmis að ef fólk er á fjöllum og finnur eitthvað ryðgað stálstykki sé mjög líklega um sprengju að ræða. Það sé ekki svo algengt langt frá vegi í íslenskri náttúru að finna stálstykki.

Sjái fólk eitthvað slíkt segir Ásgeir áríðandi að taka mynd, tilkynna og helst vera með staðsetningu á hreinu. Best sé að tilkynna strax svo sveitin þurfi ekki að leita en oft sé hægt að fá upplýsingar um staðsetningu í símum, en aðeins ef kveikt er á staðsetningarbúnaði.

Ásgeir segir sprengjusveitina hafa síðustu árin eytt tugþúsundum fallbyssukúlna af öllum stærðum og gerðum síðustu árin.

„Það eru 20, 30 mál á hverju sumri þar sem einhver finnur eitthvað í fjöru eða í móa þar sem herinn hefur verið að æfa. Það voru 30 til 50 þúsund manns hérna sem þurftu að æfa og þeir voru mjög duglegir að æfa,“ segir hann og að ýmislegt hafi verið skilið eftir. Herinn hafi aðallega verið á suðvesturhorninu og í kringum Reykjavík en breski herinn hafi líka verið með æfingasvæði við Akureyri, Hrúta- og Skagafjörð.

Suðurlandsvegur lokaður fyrir skotæfingar

„Ef herinn væri að æfa í dag, þá væri það skilgreint svæði með leyfi ríkisins og allt tekið upp en í seinni heimsstyrjöldinni vorum við hernumin af Bretum og verklagið var ekki alveg þannig. Til dæmis var Suðurlandsvegur við Sandskeið lokaður tvisvar þrisvar í viku því það voru skotæfingar yfir veginn,“ segir hann og að slíkar æfingar hafi verið auglýstar í dagblöðum og að þær yrðu á milli 8 og 12.

Umfangið hafi þannig verið verulegt.

„Þessi búnaður er alls ekki hættulaus í dag, ef eitthvað er er hann bara hættulegri,“ segir hann og að frost og hitabreytingar hafi slæm áhrif auk þess sem sprengiefni leysist ekki upp í vatni.

#gæti #kom #upp #verið #þetta

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886120d/-tha-kom-upp-ad-thetta-gaeti-verid-polsk-eda-thysk-sprengja-

📰 Aðrar fréttir

Átakalínur: Leigubílstjórar sem segja já og erlendir blaðamenn sem segja Evrópuher
📅 23.08.2026 👁️ 1
Átakalínur: Leigubílstjórar sem segja já og erlendir blaðamenn sem segja Evrópuher
Ef já verður ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þá munu aðildarviðræður hefjast við Evrópusambandið. Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Ev...
Hvað gerist á fast­eigna­markaði ef við göngum í ESB? - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 1
Hvað gerist á fast­eigna­markaði ef við göngum í ESB? - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Steinn Ármann Magnússon leikari er látinn. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föst...
Leik­konan Bunny Levine er látin - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Leik­konan Bunny Levine er látin - Vísir
Levine var þekktust fyrir hlutverk sín í þáttunum Gilmore Girls og kvikmyndinni La La Land frá árinu 2016 með Emmu Stone og Ryan Gosling í aðalhlutver...
Rúm­lega hundrað flug­ferðum af­lýst og langar bið­raðir - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Rúm­lega hundrað flug­ferðum af­lýst og langar bið­raðir - Vísir
Gardermoen-flugvelli við Ósló var lokað í fimm klukkustundir í morgun vegna verkfalls tólf flugumferðarstjóra á flugvellinum auk Fleslands-flugvallar ...
Jón Þór fær starf hjá Samherja
📅 23.08.2026 👁️ 0
Jón Þór fær starf hjá Samherja
Jón Þór fær starf hjá Samherja Jón Þór Kristjánsson Mynd: Sindri Swan / samherji.is Jón Þór Kristjánsson hefur tekið til starfa hjá Samherja sem verke...
Davíð Þór um frá­fall Steins Ár­manns: „Engin orð. Bara sorg“ - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Davíð Þór um frá­fall Steins Ár­manns: „Engin orð. Bara sorg“ - Vísir
Greint var frá því í morgun að Steinn Ármann hefði andast að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári. Steinn...
Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
📅 23.08.2026 👁️ 0
Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert Óttar Örn SigurbjörnssonEr mikill reynslubolti þegar kemur að ELKO Mynd: Golli Óttar Örn Sigurbergsson, fra...
Ný könnun meðal Evrópubúa: 55% segja Evrópusambandið stefna í ranga átt
📅 23.08.2026 👁️ 0
Ný könnun meðal Evrópubúa: 55% segja Evrópusambandið stefna í ranga átt
Meirihluti íbúa Evrópusambandsins telur að þróun mála innan sambandsins sé á rangri leið samkvæmt nýjustu Standard Eurobarometer-könnun framkvæmdastjó...
Robots compete in boxing, football and sprinting at World Humanoid Games
📅 23.08.2026 👁️ 1
Robots compete in boxing, football and sprinting at World Humanoid Games
The second-edition of the five-day competition kicked off in Beijing, China, on Saturday.
Sororicide lagði Tékkland að velli á fyrstu tónleikunum erlendis
📅 23.08.2026 👁️ 0
Sororicide lagði Tékkland að velli á fyrstu tónleikunum erlendis
Frumherjar íslensks dauðarokks stigu á svið á Back to the Symbolic-hátíðinni á föstudagskvöld – Myndskeið frá tónleikunum sýna sveitina í hörkuformi o...
Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austan­lands - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 1
Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austan­lands - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag verði yfirleitt gola eða stinningsgola. Skúrir verði víða um land, einkum á Suður- og...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Met stjórnarandstöðunnar
📅 23.08.2026 👁️ 0
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Met stjórnarandstöðunnar
Það hefur tekið verulega á að fylgjast með afbökunum og útúrsnúningum nei-sinna í ofsafenginni kosningabaráttu þeirra. Pistlahöfundur hugsaði um tíma ...
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
📅 23.08.2026 👁️ 0
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur
Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur Að­al­heið­ur S. Gunn­ars­dótt­ir er eina kon­an með yf­ir millj­arð í árs­tekj­ur á Há­tekju­lista Heim...
Steinn Ármann er látinn
📅 23.08.2026 👁️ 0
Steinn Ármann er látinn
Steinn Ármann Magnússon, leikari, andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði 21. ágúst 2026 síðastliðinn, á 62. aldursári.Þetta kemur fram í tilkynningu f...
15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
📅 23.08.2026 👁️ 0
15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir Gunnar, Kristján og Árni hafa það nokkuð gott Mynd: Samsett Heimildin hefur tekið saman sinn árlega Hátekjulista ...
Steinn Ármann Magnússon er látinn
📅 23.08.2026 👁️ 0
Steinn Ármann Magnússon er látinn
Hinn ástsæli leikari, grínisti og Radíusbróðir lést á heimili sínu í Hafnarfirði á föstudag – Steinn setti mark sitt á íslenskt skemmtanalíf og gladdi...
CrossCountry cancels 'almost all' UK services after power cut
📅 23.08.2026 👁️ 0
CrossCountry cancels 'almost all' UK services after power cut
Customers say the disruption to virtually all UK CrossCountry services is the "worst case scenario".
Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá
📅 23.08.2026 👁️ 0
Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá
Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá Mynd: Shutterstock Leikarinn Steinn Ármann Magnússon er látinn, 61 árs að aldri. Hann lést á heimili sínu í Haf...
Steinn Ár­mann er látinn - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Steinn Ár­mann er látinn - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Steins. Steinn lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Hann vakti fyrst athygli á tíunda árat...
Zelensky has 'questions to answer' on corruption, Mykhailo Fedorov says
📅 23.08.2026 👁️ 0
Zelensky has 'questions to answer' on corruption, Mykhailo Fedorov says
The sacked former defence minister has also called for elections to be held in Ukraine.
Zelensky has 'questions to answer' on corruption, Mykhailo Fedorov tells BBC
📅 23.08.2026 👁️ 0
Zelensky has 'questions to answer' on corruption, Mykhailo Fedorov tells BBC
The sacked former defence minister has also called for elections to be held in Ukraine.
Nei eða já frá ó­líkum sjónar­hornum á Sprengi­sandi - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Nei eða já frá ó­líkum sjónar­hornum á Sprengi­sandi - Vísir
Þjóðin er klofin í þessu máli og Alþingi Íslendinga sömuleiðis. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, og Sigmundur Davíð...
Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu
📅 23.08.2026 👁️ 0
Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu
Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu Brekkuás 25 Glæsilegt og rúmgott einbýlishús við Brekkuás 25 í Hafnarfirði hefur verið sett á sölu. Hú...
Þrír hand­teknir eftir á­rás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Þrír hand­teknir eftir á­rás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt - Vísir
Eftir að lögreglu var tilkynnt um málið munu allir hlutaðeigandi hafa flúið vettvang. En eftir rannsókn lögreglu voru þrír handteknir, skammt frá vett...
Police open murder investigation after woman found dead in ravine in Gran Canaria
📅 23.08.2026 👁️ 0
Police open murder investigation after woman found dead in ravine in Gran Canaria
The Guardia Civil are investigating the death of a 61-year-old woman whose body was discovered in a ravine in Gran Canaria, amid suspicions that she m...
Mikil ung­menna­drykkja á Menningar­nótt og tveimur skemmti­stöðum lokað - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Mikil ung­menna­drykkja á Menningar­nótt og tveimur skemmti­stöðum lokað - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að í öllum tilvikum hafi verið haft samband við forráðamenn sem sóttu börnin sí...
Primark announces €40 million expansion plan – but what about its Canary Islands stores?
📅 23.08.2026 👁️ 1
Primark announces €40 million expansion plan – but what about its Canary Islands stores?
Primark has announced a major €40 million investment programme, including the refurbishment of 11 stores and the opening of a new one in Spain, but it...
Hiti á fundi borgar­ráðs vegna breytinga á matarþjónustu - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Hiti á fundi borgar­ráðs vegna breytinga á matarþjónustu - Vísir
Greint var frá því í vikunni að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra ...
Kjóllinn brann korter í brúð­kaup - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 0
Kjóllinn brann korter í brúð­kaup - Vísir
Sólborg er fædd árið 1996 og starfar sem ráðgjafi á mannauðssviði hjá Eimskip. Hún er gift Magnúsi Guðlaugi Magnússyni, klippara hjá Sýn og hjónin eru...
Faðirvorið endurskrifað í „transmessu“ á Hinsegin dögum: „Gef oss í dag vor hormónaskammt“
📅 23.08.2026 👁️ 0
Faðirvorið endurskrifað í „transmessu“ á Hinsegin dögum: „Gef oss í dag vor hormónaskammt“
Ljósmyndir af sálmaskrá sem sögð er hafa verið dreift á fyrstu opinberu „messu“ Trans kirkjunnar á Hinsegin dögum sýna að Faðir vor var tekið til gagn...
3-year-old child rescued from sea after near-drowning in Lanzarote
📅 23.08.2026 👁️ 0
3-year-old child rescued from sea after near-drowning in Lanzarote
A three-year-old child has been hospitalised after being rescued from the sea yesterday evening (Saturday), showing symptoms of near-drowning at Papag...
Police officers killed in wrong-way crash mourned in 'unimaginable loss'
📅 23.08.2026 👁️ 1
Police officers killed in wrong-way crash mourned in 'unimaginable loss'
PC Matthew Blades, PC Tom Clough and five young people were killed when a car drove the wrong way on the A66 and struck the police vehicle.
Krakkatía vikunnar: Svampur Sveins­son og Sesar­salatið - Vísir
📅 23.08.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Svampur Sveins­son og Sesar­salatið - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Mayors to get powers to overrule local councils on planning decisions
📅 23.08.2026 👁️ 0
Mayors to get powers to overrule local councils on planning decisions
Housing minister Matthew Pennycook said the change was "essential" for helping mayors "effectively deliver new homes".
Cyber attack shut down small power plant
📅 23.08.2026 👁️ 1
Cyber attack shut down small power plant
The government says at no point was there a risk to the UK's energy system during the attack in July.
Iran-linked hackers behind cyber attack that shut down power plant, reports say
📅 23.08.2026 👁️ 0
Iran-linked hackers behind cyber attack that shut down power plant, reports say
The government says at no point was there a risk to the UK's energy system during the attack in July.
Restriction zone scheme for offenders to start in October
📅 23.08.2026 👁️ 1
Restriction zone scheme for offenders to start in October
Serious violent and sexual offenders may be confined to areas of just a few miles after leaving prison on probation.
Trump Mobile promoted a phone - but the details kept changing
📅 22.08.2026 👁️ 0
Trump Mobile promoted a phone - but the details kept changing
BBC Verify tracks the changes in design, spec, manufacture and release date of the T1 phone from Trump Mobile.
„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ - Vísir
📅 22.08.2026 👁️ 2
„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ - Vísir
„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið,“ er haft eftir Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið en han...
Why do we love watching hoarder videos online so much?
📅 22.08.2026 👁️ 1
Why do we love watching hoarder videos online so much?
Videos of extreme cleaning posted on social media often go viral and are watched millions of times.
Kenya's gold rush: Was it sparked by the discovery of a $200 nugget by a goat herder?
📅 22.08.2026 👁️ 0
Kenya's gold rush: Was it sparked by the discovery of a $200 nugget by a goat herder?
Prospectors have come to West Pokot county in the hope a gram of the precious metal can change their lives.
How a new era of heatwaves could shake up the school calendar
📅 22.08.2026 👁️ 2
How a new era of heatwaves could shake up the school calendar
Teachers warn it could be increasingly difficult for classrooms to function during the hottest months.
Energy UK says struggling households need more support with bills
📅 22.08.2026 👁️ 1
Energy UK says struggling households need more support with bills
Industry body Energy UK says the current support for households most in need does not go far enough.
Fór létt með tíu kíló­metra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ - Vísir
📅 22.08.2026 👁️ 1
Fór létt með tíu kíló­metra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ - Vísir
Það var á sjötta kílómetra hlaupsins sem Þorgerður virðist hafa skilið aðstoðarmann sinn eftir í rykinu eins og sagt er.Skjáskot/Facebook Aðstoðarmaðu...
Lucy Davis 'grateful' for support after cancer diagnosis
📅 22.08.2026 👁️ 1
Lucy Davis 'grateful' for support after cancer diagnosis
The Office star was appearing at convention in London, less than two weeks after announcing her condition.
Aðeins 98 fengu sænskan ríkisborgararétt eftir að reglurnar voru hertar
📅 22.08.2026 👁️ 1
Aðeins 98 fengu sænskan ríkisborgararétt eftir að reglurnar voru hertar
Veitingum ríkisborgararéttar fækkaði um tæp 94 prósent milli mánaða – Svíar hafa snúið frá áratugalangri frjálslyndri útlendingastefnu eftir vaxandi a...
Gríðar­legt á­lag á flugsveit Land­helgis­gæslunnar - Vísir
📅 22.08.2026 👁️ 1
Gríðar­legt á­lag á flugsveit Land­helgis­gæslunnar - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við blaðamann Vísis. Hann greinir frá því að eitt útkallið hafi ve...
Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis - Vísir

Sakamálið sem skekur Banda­ríkin - Vísir
📅 22.08.2026 👁️ 1
Sakamálið sem skekur Banda­ríkin - Vísir
Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan p...
Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ - Vísir
📅 22.08.2026 👁️ 2
Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kom í samtali blaðamanns og Jóhanns Karls Þórissonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en ...