Gísli Ragnar Guðmundsson, sérfræðingur í gervigreind hjá Almannarómi, gefur ekki mikið fyrir dómsdagsspár um þróun gervigreindar.
Fyrrverandi starfsmaður gervigreindarfyrirtækisins sagði nýverið að hann teldi 10% líkur á að gervigreind tortímdi mannkyni innan 10 ára. Einnig vakti athygli að frammámenn í þremur stærstu gervigreindarfyrirtækjum heims eru skyndilega fylgjandi því að setja hömlur á þróun gervigreindar.
Þegar þrír menn sem hata hver annan eru allt í einu sammála um eitthvað, þá „þýðir það alveg eitthvað, sko,“ segir Gísli Ragnar.