Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter á samfélagsmiðlum, hefur birt nýja færslu þar sem hann gagnrýnir það sem hann kallar þögn fjölmiðla um öryggismál í leigubílaþjónustu eftir lagabreytingar sem tóku gildi fyrir um þremur árum.
Í færslunni vísar Friðrik til máls sem Nútíminn fjallaði um í janúar 2025 þar sem kona sagði leigubílstjóra hafa elt sig heim eftir akstur úr miðbænum og birti myndband því til sönnunar. Þar sást maðurinn ítrekað hringja dyrabjöllu hennar og vera með kynferðislegt athæfi fyrir utan heimilið skömmu eftir að hafa ekið henni heim.
Óhugnanlegt myndband sýnir leigubílstjóra á Íslandi elta konu heim að dyrum og „fitla við sig“
Friðrik heldur því fram að maðurinn á myndskeiðinu sem dreift var á sínum tíma sé meðeigandi að leigubílastöðinni Hitch Taxi á Íslandi en hafi á þeim tíma verið starfsmaður Hopp sem passar við framburð konunnar.
Skráðir eigendur Hitch Taxi samkvæmt fyrirtækjaskrá eru tveir, báðir skráðir með Ísland sem búsetuland en ríkisfang á Heimastjórnarsvæði Palestínumanna. Ekki verður greint frá nöfnum mannanna.
Nútíminn fjallaði áður um málið og leitaði þá meðal annars eftir viðbrögðum frá Hopp. Talsmaður fyrirtækisins sagði þá að ef ferð hefði verið bókuð í gegnum app þess væri hægt að rekja alla ferðina og afhenda gögn til rannsóknar ef þörf krefði. Jafnframt var tekið fram að margir bílstjórar keyrðu fyrir fleiri en eitt fyrirtæki og að bílar sem ekki væru í virkri ferð á vegum Hopp væru ekki á ábyrgð fyrirtækisins.
Boðar frekari umfjöllun
Í nýju færslunni segir Friðrik að hann muni birta upplýsingar á morgun um 24 ára gamlan sómalskan leigubílstjóra sem hann segir hafa verið dæmdan fyrir kynferðislega áreitni gagnvart 14 ára stúlku í búningsaðstöðu sundlaugar.
Friðrik heldur því jafnframt fram að viðkomandi hafi enn verið starfandi sem leigubílstjóri níu mánuðum eftir dóminn.
Gagnrýnir afleiðingar lagabreytinga
Friðrik hefur um langt skeið gagnrýnt breytingar sem gerðar voru á leigubílalöggjöfinni árið 2023 og telur þær hafa leitt til verri yfirsýnar og aukinnar áhættu fyrir farþega.
Í færslunni segir hann einnig að umfjöllun af þessu tagi sé bæði fréttnæm og í almannaþágu og gefur til kynna að fleiri mál tengd leigubílabransanum verði dregin fram í dagsljósið á næstunni.
Ekki náðist í Hitch Taxi við vinnslu fréttarinnar en Nútíminn hefur sent fyrirspurn á fyrirtækið og verður svarið birt ef það berst.
THIS VIDEO IS OF A CO-OWNER OF THE PALESTINIAN TAXI STATION, HITCH TAXI THAT IS RUN IN ICELAND, 5 MINUTES AFTER HE DROVE A WOMAN HOME FROM DOWNTOWN LATE AT NIGHT. HE SHOWED UP HOPING FOR SOMETHING.
THERE IS A COMPLETE MEDIA-SILENCE ABOUT THE SITUATION ON THE STREETS AFTER NEW… pic.twitter.com/4V7K4gP6Jv
— Taxý Hönter (@fridrikeinarss1) June 11, 2026