Bandaríski fréttamiðillinn TMZ greindi frá og birti myndband af handtöku bræðranna. Breska saksóknaraembættið staðfesti fréttirnar sömuleiðis í tilkynningu.
Alls eiga bræðurnir yfir höfði sér 21 ákæru í Bretlandi, þar af á Andrew 11 og Tristan 10. Ákærurnar ná yfir víðan völl en fela meðal annars í sér mansal, líkamsárás og nauðgun.
Þeir sátu í rúmensku fangelsi í fáeina mánuði árið 2023 þar sem þeir voru ákærðir fyrir mansal. Þeir hafa verið sakaðir um að stýra skipulögðum glæpasamtökum sem stunduðu mansal, kynferðisbrot gegn einstaklingum undir lögaldri og peningaþvætti.
Ekki liggur fyrir á hvaða grundvelli bræðurnir voru handteknir í Miami í gær samkvæmt umfjöllun TMZ.