Uppsagnir hjá Kviku banka tengjast ekki slitum á samrunaviðræðum bankans við Arion banka. Þetta segir Halldór Gunnlaugsson, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Kviku banka, í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.
Bankinn tilkynnti í dag að ellefu starfsmönnum hefði verið sagt upp. Tímasetningin vakti athygli enda eru uppsagnir venjulega tilkynntar undir lok mánaðar, þannig að uppsagnarfrestur – sem telur jafnan frá mánaðamótum – sé sem stystur.
Halldór segir að ákvörðun um uppsagnir hafi verið tekin að vel ígrunduðu máli. „Þegar ákvörðunin lá fyrir var talið rétt að fara beint í framkvæmd og upplýsa starfsfólk.“
Alls starfa um 250 manns hjá bankanum og nema uppsagnirnar því um 4% af heildarfjölda starfsfólks.