Yfirvöld í Kumamoto-héraði á Kyushu-eyju í suðvesturhluta Japan segja að 17 séu látnir eftir jarðskjálftann sem varð í Kumamoto á þriðjudag. Á fjórða tug eru slasaðir, þar af ellefu alvarlega.
Björgunarsveitir leita enn að fólki í rústum verslunarmiðstöðvar og pappírsverksmiðju sem skemmdust mikið í jarðskjálftanum. Yfir hundrað eftirskjálftar hafa orðið síðasta sólarhring.
Íbúar hafa sagt við fréttaveitu AFP að skjálftinn sé einn sá öflugasti sem þeir hafi fundið, en skjálftinn var 7,1 að stærð samkvæmt japönsku veðurstofunni.