Yfirvöld í Venesúela segja að fjöldi látinna eftir jarðskjálftana sé nú 6.125. Björgunarfólk og aðstandendur leita enn látinna í rústunum.
Staðfestar upplýsingar um fjölda þeirra sem saknað er liggja ekki fyrir. Yfirvöld hafa ekki gefið út hversu margra er saknað en sérfræðingar telja að um 10.000 manns sé saknað. Ríkisstjórinn í La Guaira segir að enn sé um 1.400 manns saknað.
190 byggingar gjöreyðilögðust í jarðskjálftunum og um 16.200 byggingar eru ótryggar. Margir misstu húsnæði sitt og eru heimilislausir. Ríkisstjórn Venesúela samþykkti lög á föstudaginn sem er ætlað að auðvelda útleigu húsnæðis.