Rafmagnslaust verður á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði í tvær klukkustundir aðfaranótt fimmtudags.
Starfsmenn Landsnets ráðast þá í viðhald á tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rariks í Vatnshömrum. Vinnan hefst klukkan tíu mínútur yfir tólf á miðnætti og er gert ráð fyrir að hún standi yfir í tvær klukkustundir.
Í tilkynningu Rariks um viðgerðina eru viðskiptavinir beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir vegna yfirvofandi rafmagnsleysis um leið og þeir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem það kann að valda.