Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík - Vísir

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík - Vísir
Allir flokkar sem bjóða fram í Reykjavík, nema Framsóknarflokkurinn og Píratar, hafa kynnt stefnu sína og er í öllum fjallað um leikskólamál, en þó mismikið. Í Reykjavík eru tæplega 90 leikskólar, bæði borgarreknir og sjálfstætt starfandi, fyrir um sex þúsund börn. Sex ungbarnaleikskólar eru í borginni og sérútbúnar ungbarnadeildir eru í mörgum skólum. Nýlega var innleidd ný gjaldskrá í Reykjavík og er ekki rukkað fyrir 36 tíma leikskóladvöl. Breytingunum er ætlað að fækka fáliðun og lokunum í leikskólum og tryggja að hægt sé að innleiða styttingu vinnuvikunnar í vinnutíma starfsfólks. Vinnutími starfsfólks er að jafnaði 36 tímar en meðaldvalartími barna rúmar 40 stundir á viku.
Ekki hefur verið greint frá aldri við innritun í leikskóla í haust en síðasta haust fengu öll börn sem voru 18 mánaða eða eldri þann 1. september boð um vistun í borgarreknum leikskólum. Úthlutun hófst í upphafi marsmánaðar og var ekki innritað í fjóra leikskóla vegna framkvæmda. Þá kom fram í tilkynningu að búist væri við að 277 ný leikskólapláss yrðu í boði á árinu sem myndu koma á móti þeim 169 plássum sem detta út vegna framkvæmda og viðhalds.

Hér að neðan er farið yfir stefnu flokkanna í leikskólamálum og stuðst við þá stefnu sem birt er á vef framboðanna. 

Greiða aðeins fyrir eitt barn

Flokkur fólksins vill leysa leikskólavandann með 100 prósenta systkinaafslætti og aðeins sé greitt fyrir eitt barn. Þau vilja bregðast við bráðum húsnæðisvanda með einingahúsum. Þau vilja tryggja öllum börnum leikskólapláss frá tólf mánaða aldri og heimgreiðslur þurfi fólk að bíða eftir því.

Guðmundur Ingi Þóroddsson er oddviti Flokks fólksins. Vísir/Vilhelm

Plássið tryggt á fyrirtækjaleikskóla

Þá vill flokkurinn heimila fyrirtækjaleikskóla og að börnum sé tryggt áfram pláss þótt foreldrar hætti að vinna hjá fyrirtækinu.Að lokum vill flokkurinn hækka niðurgreiðslu til dagforeldra frá tólf mánaða aldri og tryggja dagforeldrum faglega ráðgjöf og aðgang að sameiginlegum leikrýmum. Stefnu Flokks fólksins er hægt að kynna sér hér.
Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar. Vísir/Lýður Valberg

Sumaropnun í leikskólum

Viðreisn vill bjóða dagvistun frá því að fæðingarorlofi lýkur og ætlar að halda áfram samtali við ríkið um lengingu fæðingarorlofsins. Flokkurinn vill tryggja systkinaforgang auk þess sem hann styður fjölbreytt rekstrarform í dagvistun og leikskólum og vill halda byggingum í lagi.„Það eru tækifæri í því að fá vinnustaði að borðinu þegar kemur að því að brúa bilið. Við munum hvetja stóra vinnustaði til að opna dagvistun fyrir ung börn og viðhafa góða samvinnu varðandi slík verkefni,“ segir í stefnu flokksins.Þar kemur einnig fram að þau vilji fjölga dagforeldrum í hverfum borgarinnar. Þá segjast þau styðja tilraunir með sveigjanlegri opnunartíma og sumaropnun án þess að það bitni á faglegu starfi. Stefnu Viðreisnar er hægt að kynna sér hér.

Vilja fjölga leikskólaplássum um 1.500

Í stefnu Samfylkingar kemur fram að flokkurinn líti á leikskólann sem fyrsta skólastigið og lykilþjónustu í daglegu lífi fjölskyldna.„Öflugt leikskólakerfi er forsenda jafnra tækifæra barna og gerir foreldrum kleift að taka fullan þátt í atvinnu og samfélagi. Þess vegna viljum við að þjónustan verði aðgengileg, áreiðanleg og vönduð,“ segir í stefnu flokksins sem svo leggur fram átta kosningaloforð. Þar segist flokkurinn ætla að setja 600 milljónir í aukna mönnun og úrbætur á leikskólum. Þau ætli að fjölga leikskólaplássum um 1.500 á kjörtímabilinu í þeim tilgangi að bjóða yngri börnum á leikskóla.
Pétur Marteinsson er nýr oddviti Samfylkingarinnar. Vísir/Lýður Valberg
Þá ætlar Samfylkingin að hækka framlag til fjárfestinga í viðhaldi og uppbyggingu leikskólahúsnæðis um 10 milljarða á kjörtímabilinu svo það verði alls 30 milljarðar.Í öðrum tillögum segir að stjórnvöld ætli að skapa svigrúm til náms samhliða starfi, að þau ætli að vinna með ríkinu að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu réttar barna til leikskólavistar. Þá vill Samfylkingin einnig tryggja að öll börn fái pláss á þeim leikskóla sem er í fyrsta eða öðru vali forráðamanna auk þess sem hún vill taka upp systkinaforgang. Þá vill hún efla snemmtækan stuðning í leikskólum með því að auka aðgengi að fagaðilum á borð við þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga. Stefnu Samfylkingar í leikskólamálum er hægt að skoða hér.

300 daggæslupláss fyrir 12 til 30 mánaða

Sjálfstæðisflokkurinn kynnti stefnu sína nýverið sem kallast Strax-D. Þar eru sett fram tímamarkmið fyrir þeirra loforð og er þeim skipt í hvað þau ætla að gera á fyrstu hundrað dögunum, fyrstu fjórum mánuðunum, fyrsta árinu og svo á kjörtímabilinu. Á fyrstu hundrað dögunum ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að hefja samtöl um vinnustaðaleikskóla- og daggæslur, sníða nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn og að semja við einkaaðila um uppbyggingu húsnæðis fyrir bæði leikskóla og dagheimili. 
Hildur Björnsdóttir leiðir Sjálfstæðisflokkinn í annað sinn í Reykjavík. Vísir/Einar
Þau vilja, líkt og Samfylking, innleiða systkinaforgang og gefa sér eitt ár í það. Þá vilja þau innan tólf mánaða tryggja heimgreiðslur til þeirra sem kjósa eða þurfa að vera lengur heima að loknu fæðingarorlofi. Einnig vill flokkurinn efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk, auka niðurgreiðslur til dagforeldra og semja um breytta gjaldskrá auk þess sem á að ráðast í aðgerðir til að draga úr tíu prósenta veikindahlutfalli hjá starfsmönnum í leikskólum borgarinnar. Þá vill flokkurinn stytta nám leikskólakennara.Ef litið er til alls kjörtímabilsins vill flokkurinn tryggja að fjölgun leikskólaplássa sé í samræmi við spálíkan um fjölgun barna, þau vilja tryggja 300 ný pláss á dagheimilum og styrkja rekstrargrundvöll sjálfstætt starfandi leikskóla. Þau vilja tryggja aðgengi að þroskaþjálfum og talmeinafræðingum og að allar fjölskyldur fái pláss innan síns hverfis. Að lokum, sé litið til framtíðar ætlar flokkurinn að tryggja fjölskyldum áreiðanlegar lausnir strax í kjölfar fæðingarorlofs. Stefnu Sjálfstæðisflokksins er hægt að kynna sér hér.

Engin kynjafræðsla

Í stefnu Okkar borgar er stuttlega fjallað um menntamál. Þar segir að flokkurinn stefni á að segja upp öllum samningum um kynjafræðslu í leik- og grunnskólum. Þá vill flokkurinn tryggja að einkareknir leik- og grunnskólar fái hundrað prósent greiðslu líkt og borgarreknir skólar. Stefnu Okkar Borgar er hægt að kynna sér hér.
Ingimar Þór Friðriksson, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Torfi Markússon í framboðinu Góðan daginn. Vísir/Anton Brink
Í stefnu framboðsins Góðan daginn er einnig nokkuð stuttlega fjallað um leikskólamál. Framboðið vill tryggja heimgreiðslur séu forráðamenn ekki komnir með vistun við tólf mánaða aldur barns síns og þar til það kemst á leikskóla. Þá vill framboðið einnig lögfesta leikskólaþjónustu. Stefna framboðsins er hér.

Menntakerfið jöfnunartæki

Stefna Vinstrisins í menntamálum er nokkuð almenn en þar segir að menntakerfið sé eitt af mikilvægustu jöfnunartækjum samfélagsins og að það eigi að ryðja úr vegi efnahagslegum hindrunum fyrir öll börn. Um leikskólamál segir þetta: „Styðjum við menntakerfið, fjölgum leikskólaplássum og starfsfólki ásamt því að bæta starfsaðstæður allra sem þar vinna.“ Stefnu Vinstrisins er hægt að kynna sér hér.
Sanna Magdalena leiðir Vinstrið. Vísir/Lýður Valberg

Rýmri ráðningarheimildir

Sósíalistaflokkurinn vill rýmka ráðningarheimildir í leikskólum og auka fjárframlög til þess. Leikskólastjórar þurfi svigrúm og sveigjanleika til að tryggja að hlutfall barna og starfsfólks sé viðunandi á hverjum tíma. Til að takast á við manneklu í leikskólum vill Sósíalistaflokkurinn að fjöldi barna á hvern starfsmann sé endurskoðaður og að ófaglært starfsfólk fái undirbúningstíma eins og faglærðir. Bættar starfsaðstæður myndu þannig minnka starfsmannaveltu og gera leikskólastarfið eftirsóknarverðara. Stefnu Sósíalistaflokksins er hægt að kynna sér hér.Miðflokkurinn segir svarið við leikskólavanda borgarinnar felast í fjölbreyttum lausnum. Flokkurinn vill þannig tryggja heimgreiðslur eftir að fæðingarorlofi lýkur og til tveggja ára aldurs. Flokkurinn vill auka svigrúm sjálfstætt starfandi leikskóla og fyrirtækja til að opna daggæslu eða leikskóla. Þá telur flokkurinn að húsnæði eigi að taka mið af endingu í stað umhverfis- eða sjálfbærniverðlauna og vill að staðið verði vörð um dagforeldrakerfið. Stefnu Miðflokksins er hægt að kynna sér hér.

Heimgreiðslur, fyrirtækjaleikskólar og fjölgun plássa

Framsóknarflokkurinn vill eyða biðlistum eftir leikskólaplássum og fjölga þeim. Þá vill flokkurinn mæta fjölskyldum með meiri sveigjanleika í þjónustu leikskóla og bæta aðbúnað og viðhald í þeim.
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, vill fyrirtækjaleikskóla og fjölgun leikskólaplássa. Vísir/Vilhelm
Í stefnu flokksins kemur fram að hann styðji fjölbreytt rekstrarform, svo sem dagforeldra og fyrirtæki sem vilja opna leikskóla eða daggæslu. Flokkurinn vill sömuleiðis bjóða upp á heimgreiðslur fyrir börn sem bíða og jafna greiðslur í leikskóla og daggæslu eftir tólf mánaða aldur. Flokkurinn vill koma á systkina- og hverfisforgangi auk þess sem hann vill efla íslenskukennslu og fjölga starfsfólki. Stefna flokksins verður kynnt síðar í dag og verður aðgengileg á vef flokksins. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um stefnu Framsóknarflokksins í leikskólamálum. Hún verður kynnt síðar í dag. Uppfært klukkan 10:57 þann 29.4.2026.
#framboða #heimgreiðslur #margra #reykjavík #systkinaforgangur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262875471d/systkinaforgangur-og-heimgreidslur-a-lista-margra-framboda-i-reykjavik

📰 Aðrar fréttir

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
📅 29.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
Mynd Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
📅 29.10.2026 👁️ 1
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
Ofcom says photo and digital ID, banking checks or facial age estimation can help prove someone is 16 or over.
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
📅 29.10.2026 👁️ 1
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
The Conservatives criticised the chancellor for not providing more details on welfare reform in his Budget.
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
📅 29.10.2026 👁️ 2
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara se...
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
Emergency teams worked through the night to find victims after one of the worst rail disasters in Europe's modern history.
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáley...
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund ísl...
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október...
George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 5
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tíma...
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
📅 28.10.2026 👁️ 5
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
The construction of tourism facilities, housing, and infrastructure has surged in parts of Nepal and India's Uttarakhand.
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 3
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
📅 28.10.2026 👁️ 4
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
A group called the Department of Peace released information on more than 41,000 DHS staff.
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 4
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 4
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 4
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 4
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 4
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 4
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 4
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 5
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 5
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 5
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 5
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 5
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 4
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 4
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 4
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 4
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 5
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
📅 28.10.2026 👁️ 4
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
The defeated Brazilian candidate claims to be the victim of a coup d’état and political persecution, recycling unsubstantiated allegations of “elector...
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...