Tveir menn sem áttu og ráku garðþjónustufyrirtæki fyrir rúmlega áratug voru í upphafi mánaðar sýknaðir af ákæru um fjárdrátt. Þá voru liðin nærri átta ár síðan debetkort þeirra hjá fyrirtækinu voru notuð við úttektir í hraðbanka og hjá gjaldkera í banka.
Annar maðurinn var ákærður fyrir að taka út 940 þúsund krónur, hinn fyrir að taka út 740 þúsund krónur.
Mennirnir stofnuðu félagið í ársbyrjun 2017 og seldu það tveimur bræðrum rúmlega ári síðar, þeir notuðu það við verktaka- og málningarvinnu. Þegar félagið varð gjaldþrota nokkru síðar fannst skiptastjóra nokkrar færslur grunsamlegar og kærði hann þær til lögreglu.
Fimm ár frá kæru til yfirheyrslu
Fimm ár liðu áður en mennirnir voru boðaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu. Þeir mundu þá lítið eftir einstökum greiðslum. Annar sagði að það hlyti þó að vera rétt sem hann sagði í bréfi til skiptastjóra 2019 að hann hefði tekið út fé að beiðni annars nýju eigendanna og látið hann hafa það í reiðufé. Hinn neitaði því að hann hefði tekið út fé og sagðist ekki vita hvað hefði orðið um greiðslukort fyrirtækisins sem gefið var út í hans nafni.
Bræðurnir sem keyptu fyrirtækið voru líka yfirheyrðir. Annar þeirra sagðist hafa verið í miklu rugli á þessum tíma, tekið fjármuni út úr félaginu og eytt þeim í vitleysu. Hann kvaðst hafa verið mjög heiðarlegur og látið menn vinna svart fyrir sig. Hann mundi ekki eftir einstökum greiðslum en játaði því að hafa beðið annan seljendanna um að taka út pening og láta sig hafa. Þá peninga hefði hann notað í rekstur fyrirtækisins.
Vitni ekki kallað fyrir dóm
Dómari sagði engin sönnunargögn til sem sýndu fram á að upphaflegu eigendurnir hefðu dregið sér fé. Þvert á móti hefði vitnisburður annars kaupendanna hjá lögreglu stutt við yfirlýsingar mannanna um að þeir væru saklausir. Dómari tók sérstaklega fram að ákæruvaldið hefði af óþekktum ástæðum ekki kallað þann mann til að gefa skýrslu fyrir dómi.
Óhóflegur dráttur varð á rannsókninni og henni var verulega ábótavant, sagði dómari og sýknaði báða mennina. Ríkið verður að greiða málsvarnarlaun þeirra upp á rúmar 2,3 milljónir króna.