Útvarpsmennirnir Sigvaldi Kaldalóns (Svali) og Sigmar Vilhjámsson (Simmi) eru nú umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni, sem er í loftinu virka daga frá kl. 6.50-10. Á hverjum degi er símatími og dagurinn í dag var ekki öðruvísi. Svaraði Simmi undir lok þáttarins símtali frá karlmanni, sem var verulega ósáttur:„Ég ætlaði að koma með smá athugasemd. Það er frábært úrval af afleysingafólki sem hefur verið núna í sumar að undanskildum einn. Hann heitir Sigmar.“
Svona tæklaði Simmi ósáttan hlustanda í beinni: „Ég sit ekki undir að þú teljir mig lygara“