Amira Smajic, einnig þekkt sem Svarti svanurinn eftir heimildaþáttum með sama nafni, var dæmd í 26 mánaða fangelsi fyrir rétti í Óðinsvéum í Danmörku í gær.
Smajic varð þekkt í Danmörku eftir að þættirnir voru sýndir á TV2 árið 2024 og einnig á RÚV. Smajic, sem er viðskiptalögfræðingur, aðstoðaði rannsóknarblaðamanninn Mads Brügger við að afhjúpa peningaþvætti glæpamanna á Norðurlöndunum en lék tveimur skjöldum við gerð þáttanna.
Falsaði launaseðla
Dóminn í gær hlaut Smajic fyrir að fjársvik, skattalagabrot og fyrir að hafa ekki greitt virðisaukaskatt af tekjum sínum. Berlindske Tidende segir að hún hafi útbúið falska launaseðla sem hún reyndi að fá greidda frá fjölmörgum fyrirtækjum sem höfðu farið í gjaldþrot.
Henni tókst að láta það líta út fyrir að fjöldi fólks hefði starfað í gjaldþrota fyrirtækjum og ætti því rétt á launum og atvinnuleysisbótum frá fyrirtækjunum. Hún fékk nokkrar greiðslur úr atvinnuleysistryggingarsjóði en upp komst um svikin áður en fleiri greiðslur voru greiddar út til hennar.
Smajic þarf að afplána tvo mánuði dómsins í fangelsi en 24 mánuðir eru skilorðsbundnir til tveggja ára. Hún var einnig dæmd til greiðslu sekta upp á 7,6 milljónir danskra króna, jafnvirði um 146 milljóna íslenskra króna.
Búin að breyta um nafn
Smajic, sem nú hefur breytt nafni sínu í Mia Sørensen, hefur áður hlotið dóma fyrir efnahagsbrot. Í fyrra var hún dæmd fyrir rétti í Óðinsvéum í eins og hálfs árs fangelsi með þriggja mánaða skilorði og árið 2024 var hún dæmd í þriggja mánaða fangelsi af dómstólum í Herning, þar af var einn mánuður skilorðsbundinn.