Íbúar á suðvesturhorni landsins ættu að huga að því að draga fram sólarvörnina og stuttbuxurnar því þeir gætu átt von á góðu ef veðurspár næstu daga rætast.
Það verður ágætisveður á vesturhelmingi landsins í dag og gæti sólin látið sjá sig víða. Á austurhelmingi landsins verður öllu þungbúnara en hiti verður víðast hvar á bilinu 9-14 stig.
Á morgun gera veðurspár ráð fyrir öllu sólríkara veðri á vesturhelmingi landsins þar sem sólin verður í raun allsráðandi samkvæmt spákorti Veðurstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu gæti hitinn farið í 18 gráður um miðjan dag á morgun og Patreksfirði er spáð 16 stiga hita og sól.
Á föstudag tekur svo enn betra við fyrir íbúa á suðvesturhorninu því þá er gert ráð fyrir 20 stiga hita og sól og mjög hægum vindi. Það kólnar aðeins á laugardag og sunnudag en áfram verður þó bjart í veðri og hiti á bilinu 12 til 15 stig.
Hér má sjá spá Veðurstofu Íslands.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en bætir í vind norðvestantil síðdegis. Bjart með köflum og víða dálítil væta, en stöku skúrir síðdegis og þykknar þá upp norðaustantil með súld undir kvöld. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Vesturlandi.
Á föstudag:
Norðlæg átt 5-13. Súld eða dálítil rigning og hiti 6 til 12 stig, en úrkomuminna vestanlands með hita að 18 stigum.
Á laugardag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en súld norðaustantil og stöku síðdegisskúrir á Suðurlandi. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og líkur á stöku skúrum, en bjart að mestu norðan jökla. Hiti breytist lítið, en hlýnar heldur norðaustanlands.
Á mánudag:
Útlit fyrir fremur hæga norðlæga eða breytilega átt og vætu með köflum. Kólnar heldur.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt og rigningu með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands.