Forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, segir framlög norska ríkisins til hugveitu með tengsl við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein hafa verið talin til góða fyrir Noreg. Forsætisráðherrann sat fyrir svörum hjá þingnefnd í morgun vegna fjarframlaganna á tíma hans sem utanríkisráðherra.
Tveir núverandi og níu fyrrverandi ráðherrar í Noregi sitja í vikunni fyrir svörum þingnefndar sem rannsakar menningu innan utanríkisþjónustunnar. Þetta var ákveðið eftir að tengsl norskra ráðamanna við kynferðisbrotamanninn Epstein komu í ljós. Fundur nefndarinnar ber yfirskriftina Stjórn og menning í utanríkisþjónustunni og er opinn.
Aukinn stuðningur þegar Støre var utanríkisráðherra
Bandaríska hugveitan International Peace Institute fékk yfir 130 milljónir norskra króna frá norska ríkinu frá 1997 til 2018. Stuðningurinn jókst verulega eftir að Støre tók við embætti utanríkisráðherra 2005. Á sama tíma fékk hugveitan einnig stuðning frá kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein sem er sagður hafa hjálpað stjórnendum hennar að komast í kynni við auðuga einstaklinga sem gætu styrkt hana. Hugveitan var við hliðina á höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Telur Epstein ekki hafa haft áhrif á ráðamenn
Støre sagði í morgun að ekki ætti að nota orð eins og ómenningu innan stórrar stofnunar til að lýsa gjörðum fárra. Þá sagði hann utanríkisráðuneytið ekki láta draga sig í óæskilegan vinskap og spillingu. Aldrei sé hægt að tryggja að fólk misnoti ekki traust.
Reynslan af hugveitunni hafi verið jákvæð og því hafi samningar við hana verið endurnýjaðir. Þetta hafi verið talin góð fjárfesting fyrir Noreg. Þá kvaðst Støre ekki telja að Epstein hafi haft áhrif á utanríkisstefnu Noregs eða aðrar ákvarðanir stjórnvalda.
Norski diplómatinn Terje Rød-Larsen fór fyrir hugveitunni í nokkur ár. Stór hluti framlaga Noregs kom á þeim tíma. Eiginkona hans, Mona Juul, sagði af sér embætti sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak í febrúar vegna tengsla við Epstein.
Ríkisendurskoðandi Noregs rannsakaði fjárframlögin og gagnrýndi skort á hlutleysi og eftirfylgni með því hvernig peningunum sem hugveitan fékk frá Noregi var varið.
Norska Stórþingið samþykkti fyrr á árinu að fela óháðri rannsóknarnefnd að rannsaka samskipti áhrifafólks í Noregi við Epstein.