Stýrivextir hækkaðir – Vaxtafyrirkomulagið orðið að vítahring

Stýrivextir hækkaðir – Vaxtafyrirkomulagið orðið að vítahring

Stýrivextir hækkaðir – Vaxtafyrirkomulagið orðið að vítahring

Stýrivaxtahækkun mun ekki auðvelda stéttarfélögum og Samtökum atvinnulífsins að komast að niðurstöðu þegar taka þarf afstöðu til forsendubrests kjarasamninganna.

Þetta er mat Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins (SGS).

„Það er orðið æ ljósara að vaxtatæki Seðlabankans virkar ekki sem skyldi við íslenskar aðstæður,“ segir Vilhjálmur í færslu á Facebook þar sem hann bregst við hækkuninni í morgun.

„STÝRIVEXTIR HÆKKA ENN – EN HVAR ER SLEGGJAN?“ spyr Vilhjálmur.

„Hvar er sleggjan sem átti að brjóta niður verðbólguna og háu vextina? Eða er kannski búið að pakka henni niður og senda hana til Brussel?“

Vilhjálmur sagði fyrr í sumar að það væri 100% öruggt að kjarasamningar verði endurskoðaðir í haust.

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verðbólga, sem nú mælist 5,3% verði yfir 4,7% viðmiði kjarasamninganna, svokallaðra stöðugleikasamninga, þann 1. september þegar heimild er til að endurskoða þá.

Óvíst er hver framvindan verður á innlendum vinnumarkaði þar sem útlit er fyrir að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast í lok ágúst.

„Ef annarrar umferðar áhrif af hækkun olíu- og hrávöruverðs verða meiri en hingað til gæti það leitt til þrálátari verðbólgu en ella. Hins vegar gæti vaxandi framleiðsluslaki í þjóðarbúinu leitt til enn hraðari hjöðnunar verðbólgu á seinni hluta spátímans,“ segir í Peningamálum, ársfjórðungsriti Seðlabanka Íslands.

Enn óvissa um alþjóðlegar efnahagshorfur

Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum var að meðaltali 1,6% á fyrsta ársfjórðungi og það sem af er sumri virðast efnahagsumsvif hafa haldið velli ágætlega. Spáð er 1,5% hagvexti í ár. Verðbólga í viðskiptalöndum Íslands jókst töluvert í kjölfar hækkunar olíu- og hrávöruverðs vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum en áfram er gert ráð fyrir að áhrifin verði að mestu tímabundin.

Enn ríkir mikil óvissa um alþjóðlegar efnahagshorfur. Efnahagsframvinda mun að miklu leyti ráðast af þróun mála í stríðsátökum í Mið-Austurlöndum og Úkraínu. Þá ríkir einnig óvissa um viðskiptadeilur Bandaríkjanna og annarra ríkja.

Minni hagvöxtur en spáð var

Búist er við að hagvöxtur aukist í 1,9% á næsta ári og 2,6% árið 2028. Landsframleiðsla hér á landi jókst um 2,7% á fyrsta fjórðungi ársins, sem var í samræmi við maíspá Peningamála en hagvöxtur á öðrum fjórðungi er talinn vera minni en spáð var þar sem einkaneysla virðist hafa gefið meira eftir en gert var ráð fyrir. Talið er að hagvöxtur verði 1,4% í ár sem er 0,2 prósentum minna en spáð var í maí.

Þá er útlit fyrir minni útflutning sjávarafurða í ár en meiri útflutningstekjur af starfsemi gagnavera.

Slaknað á vinnumarkaði

Flest bendir til þess að slaknað hafi á vinnumarkaði. Launafólki hefur fjölgað lítillega milli ára en hlutfall lausra starfa af fjölda atvinnulausra lækkar og atvinnuleysi þokast upp. Atvinnuhorfur eru lakar en spá gerir ráð fyrir að störfum og heildarvinnustundum fjölgi á næstu tveimur árum.

Verðbólga var að meðaltali 5,2% á öðrum ársfjórðungi en jókst lítillega í júlí þegar hún mældist 5,3%. Undirliggjandi verðbólga hefur haldist í um 4,2% frá því í vor.

„Verðbólguvæntingar markaðsaðila og fyrirtækja til skamms tíma nema 3,5-4% en heimili búast við að verðbólga verði þrálátari,“ segir í peningamálum. Búist er við því að verðbólga verði heldur meiri á þessu ári en talið var í maí. Mat á undirliggjandi verðbólguþróun hefur lítið breyst.

Enn er búist við að verðbólga minnki tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár og verði komin í markmið á fyrri hluta árs 2028.

Þorvaldi Gissurarsyni, forstjóra ÞG Verks, þykir sýnt að vaxtastýringartækið virki ekki til að halda niðri þenslu og einkaneyslu í verðtryggðu peningakerfi.

„Byggingariðnaðurinn mun finna harkalega fyrir þessu,“ segir Þorvaldur.

Þorvaldi þykir vítahringur hafa orðið til þar sem fyrirtæki velta hækkandi vaxtagreiðslum yfir í verðlagið. „Sem mun aftur valda verðbólguþrýstingi. Mér sýnist við vera komin í þá stöðu að vaxtaákvarðanirnar núna og þetta viðvarandi vaxtaástand er að verða verðbólguhvetjandi.“

Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, segir 25 punkta hækkun stýrivaxta hafa í för með sér að fyrirtæki hans greiði um 100 milljónir aukalega í vaxtagreiðslur á ári. „Þar af eru um það bil 50 milljónir sem eru þá vegna okkar íbúðaverkefna.“

Þorvaldur segir ákvörðunina að hækka stýrivexti mikil vonbrigði.

„Ég hef áhyggjur af því að það muni koma harkalega niður á byggingariðnaðinum Byggingariðnaðurinn er í eðli sínu mjög fjárfrek starfsemi og vextirnir bíta þar af leiðandi meira en ella.“

Hann segist þó skilja afstöðu Seðlabankans sem reyni að stuðla að stöðugleika.

„En ég tel bara fullreynt og algjörlega sýnt að vaxtastýringartækið virkar ekki sem skyldi til að halda niðri þenslu og einkaneyslu í peningakerfi sem er í verðtryggðu ástandi og þetta vaxtafyrirkomulag sem við búum við er einfaldlega of dýru verði keypt.“

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar á fundi innan skamms.

Fundurinn verður sendur út í beinu streymi hér.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að þótt stríðið við Persaflóa hafi áhrif á verðbólguna sé stærsti vandinn heimatilbúinn.

„Fyrstu viðbrögð eru náttúrulega að þetta sýnir það svart á hvítu að þetta verkefni sem lagt var af stað með þegar gildandi kjarasamningar voru undirritaðir er endanlega komið út í skurð,“ segir Halla.

Launafólk hafi samið um lágar launahækkanir í von um að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og hið opinbera héldi aftur af gjaldskrárhækkunum auk þess sem ráðist yrði í átak í húsnæðismálum.

„Nú sjáum við það að stýrivextir eru á leið aftur upp á við þrátt fyrir þessa kjarasamninga. Það sýnir að þessi tilraun hefur misheppnast.“

Halla Gunnarsdóttir brást við vaxtaákvörðun Seðlabankans í Morgunvaktinni á Rás 1.

Fjórir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu ákvörðunina að hækka stýrivexti um 0,25% en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að verðbólga, sem mældist 5,3% í júlí, aukist enn frekar næstu mánuði en hjaðni tiltölulega hratt þegar komi fram á næsta ár. „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar.

Þar kemur fram að undirliggjandi verðbólga hafi haldist stöðug og sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða „í takt við vaxandi slaka í þjóðarbúinu“.

Nefndin vísar til þess að enn sem komið er virðist annarrar umferðar áhrif þessara verðhækkana vera minni en upphaflega var óttast. Verðbólguálag á markaði hafi einnig lækkað á ný eftir hækkun í vor.

Verðbólguvæntingar séu þó enn of háar og undirliggjandi verðbólga of mikil.

„Þó búist sé við að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári er óvissa áfram mikil, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.

Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti rétt í þessu að hún hækki stýrivexti um 0,25%, úr 7,75% í 8%.

Stýrivaxtaákvörðunin verður kynnt innan skamms, klukkan hálf níu. Þá birtir peningastefnunefnd líka röksemdafærslu fyrir ákvörðuninni.

Nefndin heldur fund klukkan hálf tíu þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir ákvörðuninni.

Við birtum þessi tíðindi og viðbrögð við þeim.

Verðbólga hefur verið þrátlát og lengi yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands sem er 2,5%. Verðbólga mælist 5,3%. Stýrivextir eru 7,75%. Vextir hafa verið hækkaðir tvisvar á þessu ári, um samtals hálft prósentustig.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, bregst við vaxtaákvörðun Seðlabankans í Morgunvaktinni á Rás 1 klukkan hálf níu.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir aðhald peningastefnu Seðlabankans of mikið og hagkerfið að kólna. Samtökin vilja að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.

Már Wolfgang Mixa, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir verðbólgu hærri en bæði væntingar og vonir stóðu til. Hann vill ekki sjá hærri stýrivexti en telur líklegt að þeir verði hækkaðir um 0,25% í vikunni.

Hann segir aðhald og samdrátt í efnahagsmálum til þess fallin að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Til þess þurfi að hægja á framgangi atvinnulífsins.

Hærri vextir gætu dregið óþarflega mikið úr hagkerfinu og komið illa niður á heimilum, fyrirtækjum og byggingariðnaði.

Arion banki telur að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta. Í greiningu bankans segir að verðbólguvæntingar séu of háar og forsendur kjarasamninga að öllum líkindum brostnar.

Góðan dag og velkomin á fréttavakt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Hún verður kynnt klukkan hálf níu í dag og klukkutíma síðar hefst kynningarfundur nefndarinnar sem að venju er í beinni útsendingu.

Ég heiti Malín Eyfjörð Ægisdóttir og fylgi ykkur fram eftir morgni.

#hækkaðir #orðið #stýrivextir #vaxtafyrirkomulagið #vítahring


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-19-styrivextir-haekkadir-vaxtafyrirkomulagid-ordid-ad-vitahring-484289

📰 Aðrar fréttir

Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 3
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 2
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 3
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 4
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...