Formaður Starfsgreinasambandsins segir stýrivaxtahækkun Seðlabankans mikil vonbrigði. Peningastefnunefnd hækkaði stýrivexti úr 7,5 í 7,75 prósent í gær og vísaði til viðvarandi verðbólgu og aukinna verðbólguvæntinga.
„Við erum á kolrangri leið frá því að við sömdum í mars 2024,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
„Þá var meginmarkmið þeirra kjarasamninga að skapa hér skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu. Það er alveg ljóst að við erum í að fara í þveröfuga átt núna, stýrivextirnir komnir upp í 7,75 prósent og þar af leiðandi eru þetta mikil vonbrigði.“
Vilhjálmur segir að stéttarfélögin muni bregðast við, bresti forsendur kjarasamninga. Forsendur kjarasamninganna miða við að verðbólga verði ekki yfir 4,7% í ágúst á þessu ári. Í Peningamálum, riti Seðlabankans, segir að 70% líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti.
„Þegar það liggur fyrir þá mun það bara koma í hlut stéttarfélaganna að taka ákvörðun um það hvernig þau bregðast við því. Þau geta sagt upp samningunum, eða leitað leiða til að reyna að bæta þeim sem höllustum fæti standa það tjón sem það hefur orðið fyrir,“ segir Vilhjálmur.