Verðbólga hefur verið þrátlát og lengi yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands sem er 2,5%. Í júlí mældist verðbólga 5,25%. Stýrivextir eru 7,75%. Vextir hafa verið hækkaðir tvisvar á þessu ári, um samtals hálft prósentustig.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, bregst við vaxtaákvörðun Seðlabankans í Morgunvaktinni á Rás 1 klukkan hálf níu.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir aðhald peningastefnu Seðlabankans of mikið og hagkerfið að kólna. Samtökin vilja að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.
Már Wolfgang Mixa, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir verðbólgu hærri en bæði væntingar og vonir stóðu til. Hann vill ekki sjá hærri stýrivexti en telur líklegt að þeir verði hækkaðir um 0,25% í vikunni.
Hann segir aðhald og samdrátt í efnahagsmálum til þess fallin að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Til þess þurfi að hægja á framgangi atvinnulífsins.
Hærri vextir gætu dregið óþarflega mikið úr hagkerfinu og komið illa niður á heimilum, fyrirtækjum og byggingariðnaði.
Arion banki telur að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta. Í greiningu bankans segir að verðbólguvæntingar séu of háar og forsendur kjarasamninga að öllum líkindum brostnar.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Hún verður kynnt klukkan hálf níu í dag og klukkutíma síðar hefst kynningarfundur nefndarinnar sem að venju er í beinni útsendingu.
Ég heiti Malín Eyfjörð Ægisdóttir og fylgi ykkur fram eftir morgni.