Leikarinn Tom Holland gæti fengið meira en 100 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega tólf milljarða íslenskra króna, fyrir hlutverk sitt í stórmyndinni Spider-Man: Brand New Day.The Wrap greinir frá þessu og hefur eftir þremur heimildarmönnum sem þekkja til samnings leikarans.Holland, sem er þrítugur, er sagður hafa fengið 20 milljónir dala, um 2,8 milljarða króna, greiddar fyrirfram fyrir myndina. Það er tvöfalt meira en hann fékk fyrir Spider-Man: No Way Home árið 2021.
Sturluð laun Tom Holland fyrir nýjustu Spider-Man-myndina