Vladímír Pútín Rússlandsforseti kom í dag til tveggja daga heimsóknar í Beijing þar sem hann fundar með Xi Jinping forseta Kína. Með Pútín í för eru ráðherrar og stjórnendur stórfyrirtækja í Rússlandi og er talið að viðskipti, orkusamstarf og alþjóðastjórnmál verði efst á baugi á fundunum.
Heimsóknin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti heimsótti Beijing. Samskipti Kína og Rússlands hafa styrkst verulega frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu og sættu refsiaðgerðum Vesturvelda í kjölfarið. Kína hefur síðan orðið einn mikilvægasti útflutningsmarkaður Rússa, sérstaklega fyrir olíu og gas.
Pútín lýsti því yfir fyrir brottför að hann væri sannfærður um að þeir forsetarnir myndu efla tengsl ríkjanna á ýmsan máta.
Albert Jónsson, sérfræðingur í utanríkis- og öryggismálum, segir líklegt að Pútín horfi fyrst og fremst til efnahagslegra hagsmuna í heimsókninni.
„Kína er stærsti kaupandi af olíu og gasi frá Rússlandi og Rússar eru mjög háðir því augljóslega, enn háðari núna því þeir eru dálítið einangraðri í veröldinni og sæta viðskiptaþvingunum þannig að Kína skiptir þá enn meira máli en áður,“ segir Albert.
Hann segir jafnframt að stuðningur Kína skipti Rússa sköpum vegna stöðunnar í Úkraínu. „Það er alveg á hreinu að án stuðnings Kínverja gætu Rússar ekki haldið þessu stríði áfram.“
Trump-stjórnin ýti ríkjum nær Kína
Albert bendir einnig á að fleiri heimsóknir þjóðarleiðtoga til Kína endurspegli aukið vægi landsins í alþjóðamálum. Þar spili stefna Bandaríkjanna undir stjórn Trumps stórt hlutverk.
„Trump-stjórnin hefur gert Bandaríkin í augum margra, þar á meðal náinna samstarfsríkja Bandaríkjanna, óáreiðanlegri bandamann en þau voru áður,“ segir Albert og bætir við að það ýti ríkjum sem skipta Bandaríkin miklu máli í áttina að Kína á sama tíma og samkeppni stórveldanna harðnar.
Margir leiðtogar hafa heimsótt Xi Jinping á síðasta ári, þar á meðal forsætisráðherrar Kanada, Bretlands, Finnlands og Suður-Kóreu. Þá hafa leiðtogar Frakklands og Þýskalands einnig átt fundi með Xi, þó ekki jafn oft og Pútín.
Albert telur stutt bil milli heimsókna Trumps og Pútíns vera tilviljun og ekki vera barátta þeirra um stuðning Kínaforseta, þar sem Trump og Xi höfðu ætlað að funda um mánaðamótin mars/apríl. Fundinum var hins vegar frestað að beiðni Trumps vegna stríðsins við Íran.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um heimsókn Vladímírs Pútín til Xi Jinping sem endar á viðtali við Albert Jónsson.