Wes Streeting, heilbrigðisráðherra Bretlands, undirbýr afsögn og ætlar brátt að tilkynna framboð í leiðtogasæti Verkamannaflokksins. Breski fjölmiðillinn The Guardian hefur þetta eftir heimildamönnum sínum í innsta hring ráðherrans.
Gustað hefur um Keir Starmer, leiðtoga flokksins og forsætisráðherra Bretlands, síðustu vikur. Í gær höfðu yfir 80 þingmenn hvatt hann til að segja af sér. Þá hafa fjórir undirráðherrar sagt af sér í mótmælaskyni við að Starmer ætli að sitja sem fastast.
Streeting átti stuttan fund með Starmer í Downingstræti 10 í morgun. Hann vildi ekki svara spurningum fréttamanna að honum loknum.