„Þetta hefur farið ágætlega af stað, það er gott fiskerí meira og minna, hringinn í kringum landið en svona fyrstu tvær vikurnar þá var leiðinda bræla,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda.
Strandveiðar hófust skömmu eftir mánaðarmót og hafa staðið alls í 8 daga. 667 bátar af 824 sem hafa leyfi hafa hafið veiðar. Eftir uppgjör gærdagsins var þorskafli kominn í 1.929 tonn sem er rúmum hundrað tonnum meira en eftir fyrstu 8 daga síðasta árs. Meðaltal var 241 tonn á dag.
Talsverð óvissa í kortunum
Vonast er til að strandveiðar geti staðið í 48 daga en ekki er búið að tryggja það með tilheyrandi lagabreytingum.
Þá vofir einnig yfir stjórnsýslukæra Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, aðildarfélags Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, til umboðsmanns Alþingis um að aukning afla til strandveiða undanfarin ár kunni að hafa verið andstæð lögum. Verði sú aukning aflögð gæti það leitt til stöðvunar veiða.
Stjórn Landssambands smábátaeigenda telur þetta óásættanlegt þar sem allt auki þetta óvissu. Í ályktun stjórnar sambandsins segir að þess sé krafist „að stjórnvöld tryggi þegar í stað strandveiðum þann lagalega og efnislega grundvöll sem nauðsynlegur er til að standa við gefin fyrirheit um 48 daga strandveiðitímabil og að tryggt verði nægjanlegt aflamagn til veiðanna.“
Kjartan segir þá einnig að áhyggjur sambandsins snúi ekki einungis að núverandi tímabili heldur einnig að framtíð strandveiða.
„Ef þetta er svigrúm sem við höfum alltaf haft og á að taka af okkur núna, hvað þýðir það þá fyrir næsta ár?“ spyr hann.
„Sérstaklega í ljósi þess að Hafró er að boða frekari skerðingar í ráðgjöf. Hvernig fer þetta í framtíðinni? Ekki bara þetta tímabil heldur næsta tímabil líka.“