Stórliðin Arsenal, Manchester City og París SG hafa öll sett sig í samband við Bournemouth vegna franska knattspyrnumannsins Eli Junior Kroupi.
Ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá en Kroupi, sem er 19 ára gamall, skoraði 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Kroupi gekk í raðir Bournemouth frá Lorient í heimalandinu og er með samning til sumarsins 2030.
Félögin þrjú vilja vita hvað leikmaðurinn kostar og bíða svars frá Bournemouth að sögn Romano.