Einn þeirra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna stærsta kókaínsmygls Íslandssögunnar er Lúther Ólason. Þetta kom fram í hádegisfréttum Rásar 2.Lúther var fyrir tveimur árum dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot þar sem honum var jafnframt gert að greiða 55 milljónir í sekt til ríkissjóðs. Sektin var síðar lækkuð niður í 51 milljón í Landsrétti.
Stórfelldur skattsvikari meðal þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar