Framkvæmdastjóri NATO segir öll aðildarríki þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að stuðningur við Úkraínu haldi áfram. Tveggja daga leiðtogafundur NATO hefst í Tyrklandi á morgun. Hátt í hundrað særðust og á þriðja tug voru drepin í árásum Rússlandshers á Úkraínu í nótt.
Nóttin var ógnvekjandi í höfuðborginni Kyiv og nágrenni. Minnst 15 manns voru drepin í Kyiv og fimm í bænum Vyshneve - rétt utan við höfuðborgina.
Hátt í hundrað manns særðust í árásum næturinnar. Fjöldi dróna hafnaði á fjölbýlishúsum og Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, hefur hvatt bandamenn til að efla stuðning við loftvarnakerfi landsins.
Úkraínski flugherinn segir loftvarnaflaugar skorta og ekki hafi tekist að skjóta niður neinar eldflaugar í stórfelldri árás næturinnar.
Tímasetningin vekur athygli, en tveggja daga leiðtogafundur NATO hefst í Tyrklandi á morgun. Þangað mætir Zelenský en verður þó ekki á fundinum sjálfum. Búist er við að hann eigi einkafund með Donald Trump Bandaríkjaforseta sem tjáði sig um mögulegan friðarsamning fyrr í dag.
„Ég held við séum mun nær því en fólk áttar sig á. Og Pútín forseti vill að þessu ljúki; ég get sagt það afdráttarlaust, þetta var gott símtal. Zelenský forseti vill að þessu ljúki núna. Við förum til Nató og ræðum þetta; ég held við náum þessu,“ sagði Trump.
Úkraína og samstaða ofarlega á baugi
Björn Malmquist fréttamaður er Ankara og fylgist með fundinum næstu daga. Árásir Rússa á Úkraínu verða ofarlega á baugi og uppi eru áætlanir um að tilkynna um veglegan fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning til Úkraínu á þessum leiðtogafundi.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, lagði línurnar fyrir fundinn í dag. „Þar sem Úkraínumenn halda áfram að verja sjálfstæði sitt verða bandamenn þeirra og Nató að tryggja að þörfum þeirra sé mætt.
Svo að ég segi það skýrt: Allir bandamenn hennar verða að leggja sitt af mörkum svo að stuðningurinn haldi áfram að berast, því öryggi Úkraínu er nátengt öryggi okkar.“
Rutte talaði líka um að Evrópuríkin og Kanada væru að standa við fyrirheit um að verja meiru til varnar- og öryggismála en stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa krafist þess að undanförnu.
Einnig verður lögð áhersla á samstöðu NATO-ríkjanna á fundinum og jafnvel reynt að breiða yfir þær deilur sem verið hafa að undanförnu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra koma til Ankara í kvöld. Varnarmálaráðherrar NATO-ríkjanna funda á morgun en sjálfur leiðtogafundurinn er á miðvikudagsmorgun.