Ráðningar í byggingarstarfsemi og ferðaþjónustu voru seinni að taka við sér í ár en fyrri ár, segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Byggingarstarfsemin hefur tekið góðan kipp í sumar en atvinnuleysi er þó meira en síðustu ár. Unnur sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 að atvinnuleysi væri hálfu prósentustigi meira en í fyrra og ljóst að hagkerfið væri að kólna.
„Það er náttúrulega byggingariðnaðurinn og mannvirkjagerð sem er sá starfaflokkur þar sem við sjáum mesta aukningu. Þessi atvinnugrein var lengur að taka við sér í vor heldur en undanfarin ár, það minnkaði seinna atvinnuleysið þar en tók góðan kipp núna í maí þannig að atvinnuleysið lækkaði töluvert frá apríl.“
Atvinnuleysi var 4,2 prósent í maí og gæti minnkað í júní. Það helst síðan alla jafna óbreytt í júlí og ágúst áður en það eykst aftur á haustin.
„Árið 2024 var atvinnuleysi á þessum tíma 3,4 prósent, svo er það örlítið hærra 25 og svo er það örlítið hærra 26, svo þetta er tröppugangur. Við förum þá með hærra atvinnuleysi inn í haustið þannig að það verður hærra en í fyrra.“
Unnur nefndi að meðal þeirra geira þar sem atvinnuleysi hefur vaxið séu listir, söfn og tómstundir og líka störf á sviði nýsköpunar og forritunar.