Stjórnvöld í Finnlandi rannsaka meint landhelgisbrot eftir að stóran dróna rak á land á eyju í Porvoo-eyjaklasanum á Finnlandsflóa í gær. Antti Hakkanen varnarmálaráðherra segir í yfirlýsingu að landhelgisgæslan rannsaki málið.
Almenningi stafaði ekki hætta af drónanum sem bar ekki sprengiefni. Þetta hefur AFP fréttaveitan eftir Antti Leskela, hjá landhelgisgæslu Finnlands, sem segir of snemmt að segja nokkuð til um hvort dróninn er frá nágrannaríkinu Rússlandi. Bráðabirgðaskoðun bendi til þess að hann hafi verið notaður til eftirlits og kortlagningar.
Dróninn er nokkurra metra langur og með áföstum vængjum. Ekki er talið útilokað að hann hafi borist til Finnlands frá öðrum ríkjum við Eystrasalt. Úkraína hefur gert árásir á olíuinnviði í Rússlandi við Finnlandsflóa síðustu mánuði. Komið hefur fyrir að úkraínskir drónar hafi hrapað á yfirráðasvæði Finnlands.