Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu en lesendur Vísis segjast einnig hafa orðið varir við skjálftann á Suðurlandi, Akranesi og norður í Búðardal.
Skjálftinn var 4,1 að stærð en upptök hans voru við Nesjavelli, að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftanum hefur fylgt minniháttar eftirskjálftavirkni.
Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar skjálfti af stærð 4,6 mældist á svipuðum slóðum, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Fréttin hefur verið uppfærð.