Veðurstofa Japans segir að skjálftinn hafi átt upptök sín á hafsbotni úti fyrir Sanriku ströndinni á Honshu eyju. Skjálftinn nú mældist 7,4 stig að stærð. Engar fréttir hafa enn borist af hugsanlegu tjóni, þar á meðal á kjarnorkuverum.Varað var við allt að þriggja metra hárri flóðbylgju en hættan er nú sögð liðin hjá. Hátt í 130 þúsund íbúum í Iwate og þremur öðrum héruðum var ráðlagt að yfirgefa heimili sín.AP-fréttastofan segir að áttatíu sentímetra há flóðbylgja hafi mælst við Kuji-höfn í Iwate-héraði innan við klukkustund eftir að skjálftinn reið yfir.. Annar minni upp á fjörutíu sentímetra mældist í annarri höfn í sama héraði.Flóðbylgjur hafa oft skollið á Sanriku og árið 2011 dóu um tuttugu þúsund manns þegar stór flóðbylgja skall á svæðinu í kjölfar risaskjálfta sem meðal annars leiddi til Fukushima-kjarnorkuslyssins.Fréttin hefur verið uppfærð.
Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út - Vísir