Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, er sátt með árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn fékk alls kjörna 55 sveitarstjórnarfulltrúa á landsvísu, sem er 12 færri en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn tapaði þremur fulltrúum í borgarstjórn Reykjavíkur en bætti við sig á Ísafirði, í Grindavík og Hafnarfirði, svo fátt eitt sé nefnt.
„Ég er mjög stolt af Framsóknarfólki um allt land. Það eru sigrar vítt og breitt um landið, málflutningur okkar náði í gegn um aukna samvinnu og framfarir í öllum þessum sveitarfélögum þannig að ég er bara stolt og kát þennan sunnudaginn,“ segir Lilja í samtali við fréttastofu.
Eins og áður segir tapaði flokkurinn verulegu fylgi í borgarstjórnarkosningunum og fékk aðeins einn fulltrúa kjörinn, Einar Þorsteinsson oddvita og fyrrverandi borgarstjóra. Borgarfulltrúarnir voru fjórir á síðasta kjörtímabili.
„Við vorum ekki að mælast mjög vel í upphafi ársins í Reykjavík en náum tæpum sjö prósentum og náum borgarfulltrúa inn. Það var ekki langt í næsta borgarfulltrúa þannig að ég tel að þar hafi verið unninn varnarsigur,“ segir Lilja
„Nú erum við bara auðvitað að skipuleggja næstu kosningar og erum, ég verð bara að segja alveg eins og er, við erum bara býsna kát með þessa niðurstöðu.“