Starfsemi á flugvellinum í Munchen var tímabundið stöðvuð í morgun eftir að tveir flugmenn tilkynntu um drónaflug í nágrenni við flugvöllinn.
AFP-fréttastofan greinir frá því að klukkan níu á staðartíma hafi tveir flugmenn tilkynnt um drónaflug og ákváðu öryggisyfirvöld að loka flugbrautum.
Lögregla og þýska flugumferðarstjórnin rannsökuðu málið og notuðu m.a. lögregluþyrlu við leit að mögulegum drónum.
Þýsku miðlarnir Spiegel og Bild greina frá því að lokunin hafi verið tímabundin og að starfsemin sé komin aftur í eðlilegt horf. Tilkynnt hefur verið um seinkanir á flugi.