Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, hefur stigið fram og stutt við þær fullyrðingar Ivan Kaufmanns að skilaboð hafi borist um að fyrirtækið ætti að vera selt í hendur íslensks aðila.
Þetta kemur fram í athugasemd sem Alfreð birti á Facebook í kjölfar fréttar Nútímans um viðtal Kaufmanns við Frosta Logason á Brotkasti.
Í viðtalinu hélt Kaufmann því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði látið þau skilaboð berast að hann ætti að selja Vélfag til Íslendings. Kaufmann sagðist ekki geta sannað að umrædd samskipti hefðu átt sér stað en fullyrti að skilaboðin hefðu borist ítrekað í gegnum milliliði.
Alfreð gengur nú lengra og segist hafa heyrt þessi skilaboð beint frá ráðherranum.
„Ekki að það skipti megin máli hversu oft þetta var sagt. En það er þá sem sagt fimm sinnum. ‘Hann þarf bara að selja fyrirtækið til Íslendings’,“ skrifar Alfreð.
Kaufmann: Þorgerður Katrín lét þau skilaboð berast að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi
Segir ráðherrann hafa sagt þetta við sig tvisvar
Samkvæmt frásögn Alfreðs sagði Þorgerður Katrín þetta fyrst í símtali snemma í ferlinu.
Hann segir að hún hafi síðan endurtekið skilaboðin á fundi í utanríkisráðuneytinu sunnudaginn 17. ágúst.
„Þorgerður Katrín sagði þetta við mig í tvígang. Einu sinni í símtali, mjög snemma í ferlinu, og svo aftur beint á fundi sem haldinn var klukkan 15:30 sunnudaginn 17. ágúst í utanríkisráðuneytinu,“ skrifar hann.
Segir Ingu Sæland hafa sagt hið sama
Alfreð heldur því jafnframt fram að Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra hafi komið sömu skilaboðum á framfæri.
„Svo sagði Inga Sæland nákvæmlega það sama við mig í myndsímtali á Messenger,“ skrifar hann.
Að sögn Alfreðs hafi því tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sagt að lausnin væri að selja fyrirtækið til íslensks aðila.
Tengir málið við fjárfestingarumhverfi Íslands
Í færslunni gagnrýnir Alfreð einnig stjórnvöld fyrir að tala um mikilvægi erlendra fjárfestinga á sama tíma og hann telur að erlendum fjárfesti hafi verið þrýst út úr eignarhaldi fyrirtækis á Íslandi.
Hann vísar þar meðal annars til ummæla Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um að Ísland þurfi að vera álitlegur kostur fyrir erlenda fjárfesta.
„Þetta sama fólk vill koma okkur inn í ESB en virðir ekki þær reglur sem við þurfum nú þegar að lúta,“ skrifar hann.
Ráðuneytið vill ekki tjá sig
Eftir að frétt Nútímans um ummæli Kaufmanns birtist bárust þau svör frá utanríkisráðuneytinu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir teldi ekki við hæfi að tjá sig um málið á meðan það væri fyrir dómstólum.
Aðalmeðferð í máli Vélfags gegn ríkinu er hins vegar lokið og aðalmeðferð í máli Ivan Kaufmanns gegn ríkinu lauk 8. júní. Í báðum málum hefur málflutningi verið lokið og er nú beðið dómsúrlausnar.