Skosk-bandaríski leikarinn John Barrowman hefur fengið yfir sig mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að hann kvartaði opinberlega undan þjónustunni í viðskiptafarrými American Airlines.Meðal þess sem fór sérstaklega fyrir brjóstið á Doctor Who-stjörnunni var að hann fékk ekki náttföt um borð.Barrowman, sem er 59 ára, birti myndskeið á X úr flugi frá Los Angeles til Lundúna en eyddi því síðar. Þar sagði hann sig, föður sinn og eiginmann hafa greitt háar fjárhæðir fyrir miða með svokallaðri Flagship-þjónustu flugfélagsins og því búist við öðru og meira.
Stjarnan fær það óþvegið eftir reiðilestur í háloftunum - „Léleg þjónusta við viðskiptavini“