Leikkonan Helen Mirren sýnir Tom Hardy, meðleikara sínum í þáttaröðinni Mobland, mikinn stuðning eftir að fréttir bárust um að Hardy hefði verið sagt upp. Ástæðan átti að vera meintur ágreiningur á bak við tjöldin við gerð þáttanna.
Mirren birti færslu á Instagram á dögunum þar sem hún lýsti yfir stuðningi við Hardy. Hún birti mynd af honum og skrifaði við hana hjartnæm skilaboð.
„Elska þig núna og alltaf,“ skrifaði Mirren og undirritaði einfaldlega með orðinu „Helen“.
Færslan birtist aðeins nokkrum dögum eftir að fréttir birtust um að Hardy gæti hugsanlega ekki snúið aftur í þriðju þáttaröð vinsælu glæpaseríunnar. Samkvæmt miðlinum myndaðist ágreiningur á meðan á framleiðslu stóð milli Hardy, meðhöfundar þáttanna Jez Butterworth, og framleiðandans David Glasser.
Samkvæmt tímaritinu Variety sögðu heimildarmenn við tökur þáttanna að Hardy hefði oft mætt seint á tökustað og reglulega komið með athugasemdir við handrit sem Butterworth hefði ekki haft tíma til að vinna úr. Hardy hafi hins vegar verið ósáttur við að handrit bárust stundum skömmu fyrir tökur og að Butterworth væri ekki alltaf viðstaddur á tökustað.
Þrátt fyrir að tökum á annarri þáttaröð sé lokið gæti Hardy þurft að taka upp viðbótarsenur á næstu vikum.
Hardy hefur talað vel um meðleikarana sína, Mirren og Pierce Brosnan.
„Að fá að horfa á þau gera það sem þau eru snillingar í og vera hluti af þeirri reynslu er frábært,“ sagði hann. „Þau eru stórkostlegir leikarar, afar hæfileikarík og hafa unnið svo mikið af frábærum verkum. Það er algjör ánægja að fá að vinna með Pierce og Helen.“